Jólasælgæti Kiwanis komið í sölu

Ágætu Eyjamenn !
Í dag föstudaginn 26 nóvember mun Kiwanisklúbburinn Helgafell fara af stað með sína árlegu fjáröflun sem er sala Jólasælgætis sem flest allir Eyjabúar þekkja, og verðum við að selja fram að næstu helgi með því að ganga í hús, og einnig er hægt að nálgast Jólasælgætið í Olís og í Tvistinum.

Við höfum ávalt fengið yndislegar móttökur hjá fólkinu sem býr í þessu frábæra samfélagi þar sem Vestmannaeyjar svo sannarlega eru. Askjan er á sama verði og undanfarinn ár eða 2000- krónur og rennur allur ágóði í styrktarsjóð, til góðra verka í okkar frábæra samfélagi.
Við munum passa uppá sóttvarnir og bera grímur til að fylgja öllum reglum eins og okkur ber skylda til.

Með ósk um góðar móttökur og fyrirfram þakklæti !

F.h Kiwanisklúbbsins Helgafells
Tómas Sveinsson forseti.

Nýjustu fréttir

Gul viðvörun á Suðurlandi í kvöld
Bæjarráð krefst sjálfstæðs lögregluembættis í Eyjum
Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.