Skipstjóri á Herjólfi sigldi eftir að réttindi runnu út
Skipstjóri hjá Herjólfi hefur fengið áminningu í starfi og verið lækkaður í tign, eftir að athugasemd og kvörtun barst um óeðlileg vinnubrögð af hans hálfu. Þetta staðfestir Hörður Orri Grettisson, framkvæmdastjóri Herjólfs ohf. við fréttastofu RÚV. Lögskráningu skipsins var ábótavant, þar sem skipstjórinn hélt áfram að sigla eftir að atvinnuréttindi hans runnu út fyrir jól.

Eitt af skilyrðum lögskráningar skipa er að skipstjórnarmenn hafi gild atvinnuskírteini.

Lögreglan í Vestmannaeyjum segir enga kæru hafa borist vegna málsins. Upplýsingafulltrúi Samgöngustofu segir engar tilkynningar eða kvartanir hafa borist, einungis fyrirspurnir.

Lögum samkvæmt er óheimilt að leggja skipi úr höfn nema allir skipverjar hafi verið lögskráðir.

Samkvæmt upplýsingum frá Samgöngustofu var maðurinn lögskráður skipstjóri um borð þegar atvinnuréttindi hans runnu út og var hann áfram lögskráður um borð í nokkra daga eftir að réttindin runnu út. Eftir því sem fram kemur í frétt ruv.is.

Skráði aðra sem skipstjóra þegar hann var sjálfur að sigla

Samkvæmt heimildum fréttastofu RÚV var aftur á móti beinlínis um ranga skráningu að ræða og skipstjórinn skráði í einhverjum tilvikum nöfn annarra skipstjóra, án þeirra vitundar, þegar hann var sjálfur að sigla.

Stjórn Herjólfs segist í svari við fyrirspurn fréttastofu RÚV líta málið alvarlegum augum. Verklag hafi verið endurskoðað af hálfu félagsins til að koma í veg fyrir sambærileg eða svipuð atvik endurtaki sig.
Skipstjórinn fékk atvinnuskírteinið endurútgefið hjá Samgöngustofu fjórða janúar.

Nýjustu fréttir

Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.