Pælt í frænkunum Ef og Hefði
Grímur Gíslason

Það er dulítið skemmtilegt að spá stundum í frænkurnar Ef og Hefði. Þær geta sýnt svo margar myndir og niðurstaðan af pælingum um þær er alltaf örlítið óræð. Ef til vill er sú niðurstaða sem kemur út úr pælingunum rétt og ef til vill er hún röng. Enginn veit hina réttu niðurstöðu varðandi Ef og Hefði. Það gerir enn meira spennandi að spá í þær frænkur.

Einkavinavæðing Elliða!
Umræðuhefð varðandi bæjarpólitíkina í Vestmanneyjum hefur breyst ótrúlega mikið á skömmum tíma. Fyrir fjórum árum og þaðan inn í fyrri tíð þótti eðlilegt og sjálfsat að gagnrýna það sem gert var. Fyrrverandi bæjarstjóri og leiðtogi Sjálfstæðismanna í Eyjum, Elliði Vignisson, fór ekki varhluta af þessu. Hann þótti safna að sér Já-fólki, og stunda Einkavinavæðingu í störfum sínum.

Eðlilegt þótti að ræða og gagnrýna á þann hátt á þessum tíma, en síðan varð einhver umbylting í þessum efnum með brotthvarfi Elliða. Skyndilega var gagnrýni orðin niðurrifsstarfsemi, neikvæðni og persónulegar árásir. Já nánast bara fúlmennska. Ekki ætla ég að reyna að meta hvað var satt og rétt í þessum ákúrum sem áberandi voru í umræðunni, en þær áttu örugglega rétt á sér að mati þeirra sem settu þær fram.

Hvað Ef og Hefði?
Ég hef því stundum velt fyrir mér, með ýmis mál sem upp hafa komið á sl. fjórum árum, og eru örugglega gagnrýniverð, hvernig umræðan Hefði orðið Ef og Hefði Elliði verið við völd. Nokkur dæmi væri hægt að taka en það væri nú að æra óstöðugan að fara ofan í þau öll.

Hvað hefði þá verið sagt?
Síðustu vikurnar hef ég t.d. velt því fyrir mér hvernig umræðan Hefði þróast Ef bæjarstjóranum Elliða, fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar, Hefði verið boðið að kaupa húsnæði sem falt var  og var í eign einhverra félagasamtaka og bærinn hafði verið með rekstur í því og hugðist jafnvel vera með starfsemi í húsnæðinu áfram.

Ef Elliði Hefði afþakkað það að bærinn keypti húsnæðið, án þess að fara með það í formlegt ferli innað bæjarkerfisins, hver Hefðu viðbrögðin þá orðið. Ef að síðan Hefði farið svo að vinir eða vandamenn Elliða Hefðu jafnvel einhverja vitneskju, kannski frá honum, um að bærinn hyggðist gera nokkurra ára leigusamning um húsnæðið við eiganda þess sem gæti orðið sæmilega arðbær og þeir hefðu í framhaldinu boðið  þokkalega vel í eignina og fengið hana. Ef að í framhaldinu Hefði svo bæjarsjóður, sem Elliði stýrði, gert samning við nýju eigendurna, vandamenn Elliða, um leigu á húsnæðinu hvað Hefði verið sagt þá?

Hefði Ef til vill verið talað um einkavinavæðingu, spillingu eða eitthvað slíkt?

Ég veit það ekki en það gæti alveg verið, Ef að umræðuhefðin Hefði verið eins og hún var áður en allir urðu sanntrúaðir.

Óútreiknanlegar frænkur
En eins og áður sagði er alveg ómögulegt að spá í þetta með Ef og Hefði. Þær frænkur eru svo óútreiknanlegar að „gamall og fúll Íhaldsmaður“ eins og ég get ómögulega áttað mig á þeim frænkum í nútímanum?

Grímur Gíslason 

Nýjustu fréttir

Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.