Skriðið úr skápnum

Ég væri klárlega að ljúga ef ég segði að það hefði komið mér á óvart að sjá Pál Magnússon leiða framboð H-listans fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar. Ég væri líka að ljúga ef að ég segði að það hafi ekki komið mér verulega á óvart þegar að Páll hringdi í mig, sem þáverandi formann kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, og viðrað þá hugmynd sína að gefa kost á sér sem leiðtogi Sjálfstæðismanna í því prófkjöri sem þá var í vændum hjá Sjálfstæðisflokknum.

Ég hafði fram að því haldið að Páll væri ekki sömu megin veggjar í pólitíkinni og ég, en með traustri og kunnuglegri rödd fjölmiðlamannsins og miklum sannfæringarkrafti var öllum efasemdum mínum eytt í hvelli. Páll fullvissaði mig um að hann hafi alla tíð fylgt Sjálfstæðisflokknum að málum. Þar hafi pólitískt hjarta hans slegið, þó svo að margir hafi haldið annað!

Páll sannfærði greinilega fleiri en mig því hann sannarlega rúllaði upp prófkjörinu og flaug inn á þing árið 2016 vængjaður atkvæðum Sjálfstæðismanna sem trúðu honum og treystu fyrir oddvitasætinu í Suðurkjördæmi.

 

Undarlegt pólitískt framhjáhald

Fyrir bæjarstjórnarkosningarnar fyrir réttum 4 árum börðumst við Páll, ásamt fleirum, fyrir því að efnt yrði til prófkjörs til að stilla upp á lista Sjálfstæðismanna í Eyjum. Ég barðist fyrir því með von um að þannig mætti skapa öfluga samstöðu, með hagsmuni flokksins og Eyjanna í huga, því að ég óttaðist að það sem síðar gerðist gæti hugsanlega gerst.

Ég veit ekki hvort það sama braust um í höfði Páls og réði minni sannfæringu en eftir á að hyggja rennir mig í grun að hann hafi hugsað á allt annan hátt en ég á þessum tíma. Við, sem vildum prófkjör, urðum undir í þessari baráttu og í kjölfarið ákvað hluti þess fólks sem ósátt var með þá niðurstöðu að segja skilið við Sjálfstæðisflokkinn, ganga til liðs við andstæðinga flokksins, og efna til sérstaks framboðs. Í framhaldi af því hófst síðan hjá Páli eitthvert undarlegasta pólitíska framhjáhald sem sögur fara af.

 

A-D-H-D greiningin

Reyndar vildu einhverjir gárungar meina að Páll væri illa haldinn af A-D-H-D, þar sem hann hafi verið stuðningsmaður alþýðuflokksins, A-listans þar til hann ákvað að ganga til liðs við D-listann, síðan hefði hann stutt H – listann en samt þóst vera D-lista maður. Kannski ekki svo galin greining?

 

Í vanda með hneigð sína og í fjölkæru sambandi

Ég held að farið hafi framhjá fáum sá pólitíski áttunarvandi sem Páll hefur glímt við sl. 4 ár. Hann virðist hafa verið í miklum vanda með pólitíska hneigð sína og verið í einhverskonar fjölkæru pólitísku sambandi. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins, leiðtogi flokksins í Suðurkjördæmi, en óopinber stuðningsmaður og virkur bakhjarl annars stjórnmálaafls í kjördæminu. Það er því fagnaðarefni að Páll skuli nú hafa ákveðið að skríða út úr skápnum og opinbera hvar hann í raun stendur í pólitíkinni. Það er betra að koma bara til dyranna eins og maður er klæddur, hvort sem að maður hefur einfaldan smekk eður ei.

 

Á hann samt enn við áttunarvanda að stríða?

Útskýringar Páls á framboðinu og söguskýringar þær sem hann hefur boðið upp á eru hins vegar frekar aumar. Að tala nú um eitthvert klofningsframboð úr Sjálfstæðisflokknun er eiginlega bara hjákátlegt. Það gat kannski átt við fyrir 4 árum en ekki nú, svo mörg vötn eru fallin til sjávar frá þeim tíma. Í millitíðinni hafa t.d. farið fram alþingiskosningar og all margir félaga Páls í H-listanum, sem á árum áður voru dyggir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins, lýstu yfir opinberum stuðningi við önnur framboð í þeim kosningum.

Það virðist því sem að einhver áttunarvandi sé enn að hrjá Pál og að hann haldi, eða kannski reyni að telja öðrum trú um, að hann sé í framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn, þó að hann sé kominn í framboð fyrir annað stjórnmálaafl. Kannski vonast hann til að stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins falli aftur fyrir fagurgalanum og fjölmiðlaröddinni og vængjaður atkvæðum þeirra geti hann nú flogið inn í bæjarstjórn!

Bara svo að því sé til haga haldið fyrir illa áttaðan Pál þá er bara einn listi Sjálfstæðismanna í framboði fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í Eyjum. D-listi Sjálfstæðisflokks.

 

Undarleg sáttagjörð

Ég fagna því hins vegar að sjá yfirlýsingar Páls um áhuga og vilja hans að að ná sáttum milli þeirra sem yfirgáfu Sjálfstæðisflokkinn fyrir 4 árum, og gengu til liðs við H-lista, og Sjálfstæðismanna. En að nálgun hans á sáttagjörð felist í því að fara í framboð fyrir þá sem berjast gegn Sjálfstæðisflokknum er vægast sagt frekar undarleg nálgun.

Sjálfstæðisflokkurinnn efndi til opins prófkjörs, til að stilla upp á lista fyrir komandi kosningar. Páll Magnússon, eins og aðrir flokksbundnir Sjálfstæðismenn, gat gefið kost á sér í því prófkjöri. Úr því að hann hafði áhuga á að blanda sér í bæjarmálin í Eyjum þá undrar mig að hann skuli frekar hafa tekið þá ákvörðun að ganga úr Sjálfstæðisflokknum til að láta stilla sér upp á lista andstæðinganna í stað þess að gefa kost á sér í prófkjörinu. Hann sem barðist fyrir prófkjöri fyrir 4 árum og taldi uppstillingu nægjanlega mikla óhæfu til að stuðningi við flokkinn, sem hann hélt samt áfram að vera odditi fyrir í kjördæminu. Er þetta mjög traust og trúverðugt? Það er að minnsta kosti ástæða til að velta upp þeirri spurningu.

 

Verður hann maður orða sinna?

Hins vegar verður gaman að fylgjast með framhaldinu. Nú er Páll kominn í þá stöðu að leiða listann, sem hann brennur fyrir að sameina Sjálfstæðisflokknum, eftir því sem skilja má orð hans. Hann hefur því öll spil á hendi hver sem niðurstaða kosinganna verður.

Það mun sannarlega reyna á Pál í þeim efnum því ef að eitthvað er að marka það sem hann segir hlýtur hann, í sáttahug sínum, að leita beint til Sjálfstæðisflokks að afloknum kosningum með samstarf og þá samruna í huga, hvort sem núverandi meirihluti heldur velli eða ekki. Núverandi meirihlutasamstarf H- og E-lista hlýtur því að vera í algjöru uppnámi nema að þar á bæ sé fólk nokkuð visst um að sé óþarfi að leggja einhvern sérstakan trúnað á orð nýja oddvitans í þessum efnum.

Grímur Gíslason

Nýjustu fréttir

Jafnt hjá ÍBV og Fram í Lengjubikar kvenna
Tómas Bent og félagar í Hearts aftur á sigurbraut
ÍBV vann Suðurlandsslaginn
Öflug barátta og samstaða skipar öndvegi í framtíð Eyjanna
Engin börn í vistun utan Vestmannaeyja
Grípa þarf til aukasundkennslu eftir langvarandi lokun
Suðurlandsslagur í Eyjum
Herjólfur til Landeyjahafnar seinni partinn

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.