„Við viljum góðfúslega benda farþegum okkar sem ætla sér að ferðast með okkur á morgun laugardag að spáð er hækkandi ölduhæð þegar líða tekur á kvöldið, en um kl. 21:00 annað kvöld er gert ráð fyrir 3 metra ölduhæð við Landeyjahöfn,“ segir í tilkynningu frá Herjólfi. Ástæðan er skítaveður um helgina, fyrsta alvöru haustlægðin sem dembir yfir okkur stífri suðvestan átt í byrjun og snýr sér yfir í norðvestan hroða á sunnudaginn.
„Að því sögðu hefur verið ákveðið að seinni partinn á morgun siglir Herjólfur eftirfarandi ferðir:
Frá Vestmannaeyjum kl. 17:00
Frá Landeyjahöfn kl. 20:45
Aðrar ferðir það kvöld falla úr áætlun, það er að segja kl. 19:30 og 22:00 frá Vestmannaeyjum og kl. 18:15 og 23:15 frá Landeyjahöfn. Ef gera þarf frekari breytingar á áætlun, þá gefum við það út um leið og það liggur fyrir.
Sunnudagur 25.september:
Á sunnudagsmorgun er spáð vestan 20 metrum á sekúndu og hátt í 5 metra ölduhæð í Landeyjahöfn, því er ansi líklegt að Herjólfur komi til með að sigla til Þorlákshafnar þann dag. Við gefum frá okkur frekari tilkynningu seinnipart laugardags varðandi siglingar á sunnudag. Hvetjum við farþega til þess að bóka í öruggar ferðir sem flytjast sjálfkrafa milli hafna þennan dag og fylgjast vel með miðlum okkar.
Þeir farþegar sem ætla sér að nýta gistirými ferjunnar eru minntir á að þeir þurfa að koma með sinn eiginn búnað,“ segir í tilkynningunni.





















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.