Farþegar sem ætla með Herjólfi í dag eru beðnir um að fylgjast með vegna versnandi veðurs.
Staðfestar brottfarir hjá Herjólfi IV í dag eru eftirfarandi:
Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00, 09:30 og 12:00
Brottför frá Landeyjahöfn kl. 08:15, 10:45 og 13:15
Eftir hádegi á að bæta í veðrið og á það að standa hæðst milli 14:00 og 18:00. Að því sögðu biðlum við til farþega sem þurfa að ferðast með okkur í dag að flýta för ef kostur er á. Varasamar aðstæður eru til ferðalaga, sérílagi fyrir faratæki sem eru viðkvæm fyrir vindi.
Hvað varðar siglingar seinnipartinn í dag, þá gefum við út tilkynningu k. 15:00. Eins og staðan er núna er útlit ekki gott fyrir siglingar hvorki til Landeyja né Þorlákshafnar.
Til upplýsinga langar okkur einnig til þess að nefna að Herjólfur IV kemur til með að sigla til Hafnafjarðar í kvöld í slipp.
Á þessum árstíma er alltaf hætta á færslu milli hafna og því ekki æskilegt að skilja eftir faratæki í annarri hvorri höfninni.





















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.