Mandala Mandala snyrtistofa er staðsett á Kirkjuvegi 10. Boðið er upp á alhliða snyrtingu ásamt dásamlegum andlitsmeðferðum frá merkinu Guinot. Mikið úrval af ilmum fyrir dömur og herra frá hinum ýmsu merkjum sem koma í fallegum gjafakössum fyrir jólin. Förðunarvörur frá Clarins og Gosh standa alltaf fyrir sínu. Vinsælasta jólagjöfin að okkar mati eru samt alltaf gjafabréfin í gott dekur sem gleður þær sem eiga allt og vantar ekki neitt.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.