Laugardaginn 28. janúar er þér boðið til málþings sem haldið verður í Sagnheimum. Boðið verður upp á 4 stutta fyrirlestra um mikilvægi þess að hlúa að eigin heilsu auk þess sem fyrirtæki, áhugahópar og aðrir munu kynna nokkur af þeim fjölbreyttu tækifærum sem eru í boði til heilsueflingar í Vestmannaeyjum. Þá mun yngstu þátttakendunum verða boðið upp á krakkajóga á Bókasafninu á sama tíma.
Þau sem koma fram á dagskránni leitast öll á einn eða annan hátt við að svara spurningunum: Hvað einkennir heilbrigt líf og hvernig get ég öðlast það? Svör þeirra kunna að vera ólík og henta öðrum misvel en hið sameiginlega er skilningurinn á tækifærinu sem ævinlega gefst hér og nú til að vaxa og dafna.
Við munum gera ítarlegri grein fyrir efni málþingsins er nær dregur, í samstarfi við fréttamiðlana í Vestmannaeyjum og þátttakendur sem við þökkum öllum hjartanlega fyrir frábært samstarf.
Þessar línur eru hins vegar settar saman sem áskorun til þín sem ert þetta einstaka kraftaverk sem heitir val. Hverjar sem ytri aðstæður okkar kunna að vera er það staðreynd að val býr til veruleika, sumir segja eina veruleikann sem við byggjum.
Með því að mæta velurðu að fjárfesta í því sem öllu skiptir – að leitast við að töfra fram bestu útgáfuna af þér.
Verið velkomin á málþingið í Sagnheimum.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.