Herjólfur sigldi til Þorlákshafnar í morgun en þar er nú 2.2 metra ölduhæð. Ekki var hægt að mæla dýpi í Landeyjahöfn í gær, sunnudag vegna ölduhæðar. Ölduspá gerir ráð fyrir lækkandi ölduhæð í dag, mánudag. Ef það gengur eftir mun dýpi verða mælt og ef aðstæður leyfa mun Herjólfur sigla til Landeyjahafnar seinni part annars dags páska, tvær ferðir.