Herjólfur mun sigla til Landeyjahafnar síðdegis í dag, 1. apríl. Brottför verður frá Vestmannaeyjum klukkan 17:30 og 19:00 og frá Landeyjahöfn klukkan 20:30 og 21:30. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskip en þar segir jafnframt að ef aðstæður breytast til verri vegar fram að brottför, verður send út tilkynning þess efnis.