Í gær skrifuðu tvö af efnilegustu handboltafólki landsins, þau Drífa Þorvaldsdóttir og Theodór Sigurbjörnsson, undir nýjan samning hjá ÍBV. Drífa skuldbindur sig til að leika með félaginu út næstu tvö tímabil en Theodór næstu þrjú. Bæði hafa þau blómstrað í vetur, hafa bæði leikið með yngri landsliðum Íslands og hafa leikið lykilhlutverk í meistaraflokkum félagsins.