Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði fyrra mark Norrköping í kvöld þegar lið hans lagði Gefle að velli, 2:1, í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Gunnar kom Norrköping yfir í fyrri hálfleiknum en gestirnir jöfnuðu og allt stefndi í jafntefli þegar Imad Khalili skoraði sigurmarkið rétt fyrir leikslok, eftir sendingu Gunnars Heiðars.