David James, markvörður ÍBV, er strax farinn að reyna að sannfæra samlanda sína og fyrrum landsliðsfélaga um að koma til Eyja. Phil Neville staðfesti í dag að hann myndi hætta í liði Everton eftir tímabilið og vill James endilega fá hann í ÍBV. Þetta kemur fram á 433.is.