ÍBV unnu Stjörnuna með tveggja marka mun 25:23 þegar liðin áttust við í Vestmannaeyjum í Olís-deild kvenna í kvöld. Arna Sif Pálsdóttir átti góðan leik og skoraði sjö mörk. Guðný Jenný Ásmundsdóttir átti einnig flottan leik í markinu og varði 14 skot. Guðný Jenný var virkilega sátt með sigur liðsins á móti Stjörnunni. Hún átti góðan leik í markinu þar sem hún varði fjórtán skot, þar af eitt vítakast. „Ég er gríðarlega ánægð með frammistöðuna og það var mjög mikilvægt að ná í þessi tvö stig. Mér fannst við ná að vinna leikinn á góðri vörn,“ sagði Guðný Jenný í samtali við mbl.is