Fundurinn verður miðvikudaginn 6. nóvember kl. 20 í safnaðarheimili Landakirkju.

Þóra Hrönn Sigurjónsdóttir verður gestur okkar og segir frá starfi sínu í Gambíu en hún var að koma þaðan. Hún ætlar að sýna myndir og segja frá hjálparstarfi. Sjö konur úr Eyjum fóru á Aglowráðstefnu í Skálholti í október og fréttir verða af því. Allar konur velkomnar kaffi í byrjun fundar kl. 20:00.