Á að hvetja til og styðja við fjölbreytta atvinnusköpun í sveitum

Grundvöllur verkefnisins
Með verkefninu vilja aðstandendur verkefnisins hvetja fólk til að koma auga á atvinnutækifæri í heimabyggð. �?átttakendum í verkefninu stendur til boða margvíslegur stuðningur til þess að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd. �?átttaka í verkefninu verður án endurgjalds. Lykilspurningar sem þátttakendur í verkefninu munu leita svara við eru m.a: Eru ónýtt atvinnutækifæri í næsta nágrenni? Hvað get ég gert til að auka tekjur mínar og/eða bæta atvinnumöguleika mína með eigin atvinnurekstri? Hvernig á ég að fara að því og hvað mun ráða úrslitum um árangur? Verkefnið er opið öllum íbúum í sveit á Suðurlandi, óháð eðli viðskiptahugmynda, atvinnugreinum sem viðskiptahugmyndir beinast að, eða reynslu þátttakenda á sviði atvinnurekstrar.

Margs konar stuðningur í boði
Verkefnið byggir á ákveðnu ferli sem í hnotskurn má lýsa á eftirfarandi hátt:
1. Hvatning og kynning á þeim möguleikum sem í verkefninu felast
2. Aðstoð við hugmyndavinnu
3. Fræðsla og handleiðsla við undirbúning viðskiptahugmynda (bæði á námskeiðaformi og einstaklingsmiðuð fræðsla)
4. Fjárstyrkur til undirbúningsvinnu
5. Fjárstyrkur til framkvæmda
6. Eftirfylgni og áframhaldandi handleiðsla
�?átttakendur njóta handleiðslu ráðgjafa Impru nýsköpunarmiðstöðvar á verkefnistímabilinu en slík þjónusta er hluti af reglulegri starfsemi Impru og er án endurgjalds. Einnig munu ráðunautar og atvinnuráðgjafar í einhverjum tilfellum koma að verkefnum þátttakenda.

Upphaf verkefnisins
Verkefnið hefst með kynningar- og hvatningarfundum. Haldnir verða tveir fundir á Suðurlandi þar sem í boði verða áhugaverð erindi sem vakið geta fólk til umhugsunar um umhverfi sitt og þau tækifæri sem kunna að vera fyrir hendi. Á fundunum verður verkefnið sjálft einnig kynnt. Fyrirlesarar verða:
· Elín Aradóttir, verkefnisstjóri hjá Impru nýsköpunarmiðstöð, kynnir verkefnið Vaxtarsprota.
· Jóhannes Kristjánsson, ferðaþjónustubóndi á Höfðabrekku í Mýrdal, segir frá reynslu sinni og gefur góð ráð.
· Andri Snær Magnason rithöfundur flytur erindi undir titlinum Hugmyndir um hin nýju hlunnindi sveitanna.

Kynningarfundirnir verða haldnir á eftirfarandi stöðum:

· Félagsheimilinu �?ingborg Árnessýslu, þriðjudaginn 30. janúar 2007, kl. 20:30.
· Veitingaskálanum Hlíðarenda Hvolsvelli, fimmtudaginn 1. febrúar 2007, kl. 20:30.
Af fréttavef Rangárþings eystra.

Nýjustu fréttir

Sterkur lokakafli skilaði ÍBV sigri gegn Selfossi
Emil Tumi sigurvegari í yngri flokki  
Stórum framkvæmdaráfanga að ljúka hjá Vinnslustöðinni
Gildrur notaðar til fiskmerkinga við Vestmannaeyjar
Treg veiði hjá Eyjaskipunum
Gary Phillips og Parkman Cook til ÍBV
Dæluskipið Sebastiano Caboto komið til Eyja
Fyrsti heimaleikurinn – ÍBV fær Selfoss í heimsókn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.