Áætluð tekjujöfnunarframlög fyrir árið 2021

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um áætlaða úthlutun tekjujöfnunarframlaga ársins 2021.

Að teknu tilliti til ráðstöfunarfjármagns sjóðsins nemur áætluð heildarfjárhæð framlaganna 1.400 m.kr. sem er hækkun um 150 m.kr. frá árinu 2020. Við útreikning framlaganna er gengið út frá hámarkstekjumöguleikum sveitarfélaga af útsvari og fasteignaskatti. Einungis kemur til greiðslu framlags hafi sveitarfélög fullnýtt heimild sína til álagningar útsvars.

Þann 29. október sl. komu ¾ hlutar af áætluðum framlögum til greiðslu samtals 1.050 m.kr. Uppgjör framlaganna fer fram í desember á grundvelli leiðréttrar skrár um álagðar skatttekjur sveitarfélaga.

Ráðherra samþykkti tillöguna á grundvelli 13. gr. reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 1088/2018 og að teknu tilliti til breytingar nr. 1216/2021 á reglugerðinni sem samþykkt var 28. október 2021.

Nýjustu fréttir

Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.