Að veiðum í 98 tíma og á siglingu í 65 tíma
Vestmannaey VE á siglingu. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Ísfisktogarinn Vestmannaey VE landaði fullfermi í heimahöfn í Vestmannaeyjum á miðvikudagskvöld. Bergur VE kom síðan í kjölfarið og landaði í gærmorgun. Afli beggja skipa var mest þorskur og ýsa. Bæði skip voru að veiðum fyrir austan land og var veiðin ágæt þar til brældi á þriðjudagskvöld, en þá var Vestmannaey búin að fylla og Bergur var við það að fylla. Rætt er við skipstjórana á vefsíðu Síldarvinnslunnar um gang veiðanna.

Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, sagði að þeir hefðu verið að veiðum á Langabanka, í Berufjarðarál og á Papagrunni. „Veiðin var ágæt þar til veður versnaði á þriðjudagskvöld en þá vorum við að leggja af stað í land. Við höfum nú veitt 130 tonn á einni viku. Fyrst var landað í Neskaupstað og síðan í Eyjum. Veiðin hefur farið fram fyrir austan land og það hefur verið mikil keyrsla. Í þessari viku höfum við einungis verið að veiðum í 98 tíma en verið á siglingu í 65. Ef hefði verið gott veður hefðum við landað aftur í Neskaupstað en norðanáttin gerði það að verkum að ákveðið var að halda til Eyja.”

Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergi, hefur sömu sögu að segja. „Við vorum að veiðum í Berufjarðarál og á Papagrunni og vorum við það að fylla þegar gerði bölvaða brælu á þriðjudagskvöld. Það var flúið undan brælunni og vegna veðurs var ákveðið að fara til Eyja. Ég geri ráð fyrir að það verði farið austur aftur því það er enginn fiskur úti fyrir Suðurlandinu um þessar mundir. Við höfum reynt fyrir okkur úti fyrir suðurströndinni en niðurstaðan hefur verið virkilega döpur.” er haft eftir Jóni í fréttinni.

Vestmannaey hélt á ný til veiða í gærkvöldi og Bergur mun halda til veiða í dag.

Nýjustu fréttir

Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.