�?að hafa margir fengið byltu í hálkunni, enda varla hægt að vera fótgangandi í bænum og þeim sem þykir vænt um bílana sína, vilja helst geyma þá inn í bílskúr. Halldór Páll Geirsson setti status á facebooksíðu sína svohljóðandi: Nákvæmlega svona liggja allar götur í Vestmannaeyjabæ, algjört svell á öllum götum og hemlunarvegalengd 20km/kls kominn í 250metra. Fullt af útskriftum, fjórir dagar til jóla, ball í kvöld og fleira á dagskrá hjá fólki og ekki sést í neinn starfsmaður frá bænum að salta eða sanda svo hægt sé að keyra eða rölta um götur bæjarins. Til hamingju þið sem stjórnið þessu, þú haldið áfram að kæta bæjarbúa með allt lóðrétt niðrum ykkur!!!