Afli íslenskra skipa á árinu 2007 var tæp 1.396 þúsund tonn, 73 þúsund tonnum meiri en árið 2006.
Þetta kemur fram í nýju riti, Afli, aflaverðmæti og ráðstöfun afla 2007 sem nú er komið út hjá Hagstofu Íslands.
Aflaverðmæti var rúmir 80 milljarðar króna og jókst um 5,4% frá fyrra ári.
Stærsti hluti afla íslenskra fiskiskipa var unninn á Austurlandi, enda er stórum hluta uppsjávaraflans landað þar.