Ágóðinn nú þegar á þriðju milljón

Ágóði af útgáfunni er kominn í rúmlega tvær milljónir króna og mun hann renna óskiptur til fjölskyldu Svandísar en bróðir hennar, Nóni Sær, 8 ára, slasaðist alvarlega í slysinu.

Nóni Sær lamaðist fyrir neðan mitt í slysinu en læknar geta ekki sagt til að svo stöddu hvort lömunin sé varanleg. �?að verður ekki ljóst fyrr en eftir að minnsta kosti ár hvort hreyfigetan í fótleggjunum sé enn til staðar og þá í hve miklu mæli. �?angað til verður Nóni Sær bundinn hjólastól. Faðir systkinanna, Ásgeir Ingvi Jónsson, lenti sömuleiðis í slysinu en honum heilsast vel.

�?Viðtökur við geislaplötunni hafa verið framar vonum,�? segir Guðmundur Karl Sigurdórsson, útgáfustjóri Frost Music sem hefur veg og vanda af útgáfu disksins. �?�?að kom skemmtilega á óvart að um tvö þúsund eintök seldust strax í forsölu á heimasíðunni okkar, frostid.is. �?að varð til þess að við pöntuðum aukaupplag af plötunni sem nú má fá í verslunum.�?

Tónlistarmaðurinn Leone Tinganelli er nágranni fjölskyldunnar og dætur hans, Salka og Mist, voru leikfélagar Svandísar �?ulu. Leone samdi lagið �?ula í minningu Svandísar �?ulu og átti frumkvæðið að útgáfu geislaplötunnar. Auk minningarlagsins eru þrjú önnur lög á plötunni með Helga Rafni, Margréti Eir og Páli �?skari.

Fjölmörg fyrirtæki hafa styrkt verkefnið með framlögum og vinnu. Skal þar fyrst telja Glitni og Póstinn en aðrir styrktaraðilar verkefnisins eru Vatíkanið, Frost, Jónar Transport, Office 1, Landsbankinn, ATH markaðslausnir, BM ráðgjöf, Rás 2, Bylgjan, Sunnlenska fréttablaðið og Laugarásbíó.

Sem fyrr segir er netsölu á geislaplötunni lokið en Sunnlendingar geta nálgast plötuna í Skálanum í �?orlákshöfn, Shellskálanum á Stokkseyri, Samkaup á Selfossi, Sunnlenska bókakaffinu á Selfossi og á afgreiðslustöðum Póstsins.

Nýjustu fréttir

Bæjarráð krefst sjálfstæðs lögregluembættis í Eyjum
Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.