Áherslan á virkni og hæfingu í stað vinnu og hæfingu
Heimaey Kerta
Heimaey - vinnu- og hæfingarstöð. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Heimaey – vinnu- og hæfingarstöð var til umfjöllunar á fundi fjölskyldu- og tómstundaráðs Vestmannaeyja. Silja Rós Guðjónsdóttir, Björg Ólöf Bragadóttir og Þóranna Halldórsdóttir fóru yfir vinnu starfshóps á vegum fjölskyldu- og fræðslusviðs vegna endurskoðunar á starfsemi Heimaeyjar – vinnu- og hæfingarstöð.

Markmiðið með endurskoðuninni er að efla Heimaey sem hæfingarstöð með áherslu á starfs- og virkniþjálfun í samræmi við hæfingarstöðvar hjá öðrum sveitarfélögum. Ekki verður lengur greidd laun fyrir verndaða vinnu heldur greitt fyrir ákveðin verkefni sem skila hagnaði. Þeim þjónustuþegum sem ná starfsmati verður veitt aðstoð við að komast í Atvinnu með stuðningi út á almennum vinnumarkaði og þeir sem ekki ná starfsmati verða áfram í hæfingu. Ekki er um að ræða skerðingu á þjónustu Heimaeyjar heldur fyrst og fremst breyttar áherslur. Starfshópurinn leggur til að gerðar verða breytingar á húsnæðinu í samræmi við áherslubreytingarnar. Lagt er til að gerðar verði breytingar, t.d. á eldhúsaðstöðu, bætt aðgengi og tækjabúnaður, útbúin rými fyrir hæfingu eins og smíðaaðstaða, sauma- og margmiðlunaraðstaða, heilsuþjálfunaraðstaða, einstaklingsþjálfunarrými, skynörvunar- og hvíldarrými, listaaðstaða, matsalur og fundar- og fræðslurými. Hópurinn leggur til að farið verði í þessar breytingar eins fljótt og hægt er.

Í afgreiðslu ráðsins segir að ráðið þakki fyrir kynninguna og samþykkir fyrir sitt leiti þær áherslubreytingar sem lagðar eru fram á starfsemi og markmiðum Heimaeyjar þar sem áherslan verður á virkni og hæfingu í stað vinnu og hæfingu. Ráðið fól framkvæmdastjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs að fara með hugmyndir að breytingu á húsnæði inn í vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2026.

Nýjustu fréttir

„Fínasti vertíðarfiskur”
Kallað eftir hugmyndum fyrir Goslokahátíð 2026
Ein ferð í Landeyjahöfn
Heilsurækt við Íþróttamiðstöðina boðin út á ný eftir kærumál
Góður mánudagur sem varð enn betri!
Fimm skip til loðnuleitar
Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Gong slökun, endurstilling í hraða nútímans
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.