Ákærður fyrir hótanir gegn lögreglustjóra
Maður hefur verið ákærður fyrir að hóta Páleyju Bergþórsdóttur, lögreglustjóra í Vestmannaeyjum, barsmíðum og öðrum lögreglumanni á vakt þann 7. september 2015 lífláti. Vísir.is greindi frá.
Einnig hafði hann umrætt kvöld brotið gegn valdstjórninni með því að taka lögreglumanninn hálstaki og ná honum niður í jörðina þannig að áverkar hlutust af.
�?egar á lögreglustöðina kom á ákærði að hafa sagst vita hvar lögreglumennirnir ættu heima og að hann ætti vini sem þeir ættu að vita hvers væru megnugir.
Verði maðurinn fundinn sekur getur hann átt yfir höfði sér fangelsisdóm. Refsiramminn veitir heimild til að fangelsa menn í sex ár fyrir slík brot.
Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.

Nýjustu fréttir

Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Jólagleði í skókassa til Úkraínu
Helgi Rúnar hefur fylgst með Kveikjum neistann frá upphafi
Hafsteinn Þórólfsson syngur eyjaperlur í Eldheimum
Allison Clark í úrvalsliði Bestu deildar kvenna hjá Fótbolta.net
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.