Átelur harðlega vinnubrögð vegna Suðurstrandarvegar

Vísað er til þess að með kjördæmabreytingunni og þar með tilkomu Suðurkjördæmis hafi þingmenn og ráðherrar boðað að vegur sem tengdi kjördæmin á Reykjanesi og Suðurlandi saman kæmi með Suðurströndinni. Vegurinn hefur farið í gegnum mat á umhverfisáhrifum og hönnun hans hafin.

�?Í átaki ríkisstjórnar Íslands til atvinnusköpunar sem kynnt var fyrri hluta vetrar 2003 af Davíð Oddssyni þáverandi forsætisráðherra og Halldóri Ásgrímssyni þáverandi utanríkisráðherra var gert ráð fyrir fjárveitingum til Suðurstrandarvegar sem dugað hefði til lagningar meginhluta vegarins. Eftir alþingiskosningarnar sama ár var stór hluti fjárveitingarinnar dreginn til baka.
Með samgönguáætlun 2007 til 2018 er enn verið að svíkja gefin fyrirheit um uppbyggingu þessa mikilvæga vegar.

Bæjarstjórn átelur harðlega þau vinnubrögð sem hafa verið viðhöfð við ákvarðanir um fjárveitingar til Suðurstrandavegar og telur þau algjörlega óásættanleg. Bæjarstjórn skorar á þingmenn kjördæmisins að standa við gefin fyrirheit um lagningu Suðurstrandarvegar með því að tryggja fjármagn til framkvæmda á næstu 2 til 3 árum,�? segir í

Nýjustu fréttir

Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.