Valið í A landslið kvenna í handbolta

Þjálfarateymi A-landsliðs kvenna hefur valið 22 leikmenn til æfinga hér á landi dagana 26. september – 1. október nk.. Þetta er liður í undirbúningi liðsins fyrir forkeppni HM 2024. Ísland leikur gegn Ísrael 5. og 6. nóvember og fara báðir leikirnir fram hér heima. Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari ákvað að þessu sinni að velja fimm leikmenn […]
Áfram í 5. sæti

Kvennalið ÍBV í knattspyrnu gerði jafntefli við Þór/KA í dag, lokaniðurstaðan var 3-3. Þó skoraði íBV fleiri mörk í leiknum, því eitt reyndist sjálfsmark. Kristín Erna Sigurlásdóttir átti góðan leik og skoraði tvö af mörkum íBV. Eftir leikinn er lið ÍBV enn í 5. sæti með 23 stig. Mörk ÍBV skoruðu Kristín Erna Sigurlásdóttir á […]
ÍBV stelpurnar fara norður í dag

15. umferð Bestu deildar kvenna í knattspyrnu heldur áfram að rúlla í dag, en ÍBV stelpurnar okkar heimsækja Þór/KA fyrir norðan. Norðanstelpur eiga mikið undir og eru í fallhættu eftir úrslit leiks Aftureldingar og KR í gær, þar sem Afturelding fór með sigur af hólmi. Þór/KA er í 8. sæti með 13 stig. ÍBV er […]
Heimir til Jamaíka?

Sparkspekingar landsins virðast nú keppast um að giska á hvert knattspyrnuþjálfarinn, Heimir Hallgrímsson fer næst til að þjálfa. Heimir, hefur sem kunnugt er, verið á leikskrá hjá ÍBV síðan í sumar, en hann hefur verið án formlegs þjálfarastarfs síðan hann yfirgaf Al Arabi í Katar í júní 2021. Í síðustu viku var orðið á götunni […]
Tilkynning frá Herjólfi vegna ferða 14. sept

Vegna ferða 14.09.2022 kl. 14:30 og 15:45. Ferð frá Vestmannaeyjum kl 14:30 og kl 15:45 frá Landeyjahöfn eru ekki á áætlun á morgun, miðvikudaginn 14. September, vegna yfirferðar á björgunarbátum ferjunnar. Aðrar ferðir eru á áætlun. (meira…)
Einungis fjögur börn á biðlista

Í Reykjavík mótmæla foreldrar úrræðaleysi borgaryfirvalda í leikskólamálum, en komið hefur fram að um 800 börn séu á biðlista eftir leikskólaplássi. í Vestmannaeyjum er aðra sögu að segja, enda þó fólksfjölgun hér hafi verið svipuð og í Reykjavík. Í fyrirspurn til Vestmannaeyjabæjar kemur fram að einungis fjögur börn séu nú á biðlista eftir leikskólaplássi, en […]
Eldur í Hótel Eyjar

Talsverður viðbúnaður var við Hótel Eyjar í Vestmannaeyjum á tíunda tímanum í morgun þegar tilkynnt var um bruna þar. Að sögn Ragnars Ragnarssonar, varðstjóra hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum reyndist eldurinn minniháttar og gengu slökkvistörf greiðlega. Engan sakaði í brunanum en einhverjar skemmdir urðu inni á hótelinu. Lögreglan tekur við rannsókn málsins þegar slökkvilið hefur lokið […]
Rúmlega 900 pysjur skráðar

Pysjutímabilið hefur heldur betur tekið kipp síðustu vikuna, en nú hefur 907 pysja verið skráð í kerfið á þessu tímabili. Rúmlega 400 þeirra hafa verið vigtaðar, meðalþyngd er 425 gramm, en sú léttast var 173 grömm og sú þyngsta 325 grömm. En það eru ekki bara pysjur sem yfirgefa holurnar sínar um þessar mundir, heldur […]
MATEY – dagskrá 10. september

10:00 -17:00 Listasýningin ,,Konur í sjávarútvegi” er opin í Einarsstofu, einnig er opið í Sagnheimum, Byggðasafni Vestmannaeyja. 10:00 Leiðsögn um Aldingróður. Gróðurhúsið í Eyjum sem ræktar sprettur fyrir veitingastaði og mötuneyti. 11:30 -14:00 Hádegis-sérréttir á veitingastöðum bæjarins. Gott Næs Kráin Tanginn 13:00 – 16:00 Sjóminjasafn Þórðar Rafns, Flötum 23. Opið fyrir gesti, enginn aðgangseyrir. Tryggvi […]
Besta kvenna: ÍBV tekur á móti Breiðabliki

ÍBV stelpurnar okkar taka á móti Breiðabliki á Hásteinsvelli í dag kl. 17:00 Breiðablik er í 2. sæti Bestu deildar kvenna, en íBV er í 6. sætinu, 11 stig skilja liðin að. Búast má við hörkuleik, eins og alltaf, þegar stelpurnar okkar eiga í hlut. (meira…)