Felix �?rn á reynslu hjá Brighton

Felix �?rn Friðriksson hin bráðefnilegi knattspyrnumaður hjá ÍBV er þessa dagana á reynslu hjá Brighton & Hove Albion á Englandi en þetta kemur fram á vef Fótbolta.net. Felix �?rn er ásamt öðrum Íslending Helga Guðjónssyni úr Fram á reynslu úti og munu þeir æfa með U18 ára liði Brighton í vikunni. Felix �?rn og Helgi […]

Enn fullt af pysjum

Enn eru að berast fjöldi pysja í pysjueftirlitið þrátt fyrir að kominn sé 5. október. Fólk er jafnvel að finna 10-15 pysjur á kvöldrúntinum. Í dag var komið með enn fleiri pysjur en síðustu daga eða samtals 262 pysjur. Núna eru þær orðnar 3231 talsins. Með sama áframhaldi ættum við að geta tvöfaldað árið 2012 […]

Fékk 11000 volta straum í gegnum sig

Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í vikunni sem leið og sinnti hinum ýmsu verkefnu sem upp komu. Skemmtanahald helgarinnar fór ágætlega fram og engin teljandi útköll á öldurhús bæjarins. Tvö þjófnaðarmál komu til kasta lögreglu í liðinni viku og var í báðum tilvikum um að ræða fjóra 14 ára drengi. Höfðu þeir stolið neftóbaki […]

Brotist inn í mælingabát í Landeyjahöfn

Aðfaranótt laugardags var brotist inn í mælingabát Samgöngustofu sem um þessar mundir er í Landeyjahöfn. Báturinn var nýkominn á staðinn og hafði ekki verið sjósettur heldur var á kerru á bryggunni. Lögreglumenn á Hvolsvelli í samvinnu við lögreglu í Vestmannaeyjum hafa upplýst málið. Í ljós kom að tveir einstaklingar sem höfðu farið í bílaleigubíl með […]

Sito og Barden áfram hja ÍBV

ÍBV er að ganga frá framlengingu á samningi við spænska framherjann Jose Enrique Seoane Vergara eða Sito, en þetta kemur fram inni á Fótbolti.net Sito kom til ÍBV í júlí síðastliðnum og átti stóran þátt í að hjálpa liðinu að halda sæti sínu í Pepsi-deildinni með því að skora sex mörk í ellefu leikjum. �??�?að […]

Knattspyrnusumarið rifjað upp – myndband

Eins og fyrr segir var knattspyrnusumarið gert upp í Höllinni á laugardaginn. �?ar voru þeir sem þótt standa sig best í sumar verðlaunaðir, og þóttu Hafsteinn Briem og Sigríður Lára best. �?ar var sumarið rifjað upp að hætti Sighvatar Jónssonar hjá Sigva-media en fyrirtækið fagnar einmitt 10 ára afmæli þessa dagana í Einarsstofu. Myndbandið má […]

Pysjurnar nálgast 3000

Enn eru pysjurnar að fljúga í bæinn og láta dagatalið eða veðrið ekkert trufla sig í þeim efnum. Í dag var komið með 239 pysjur í pysjueftirlitið og er það svipað og verið hefur síðustu daga. Heildarfjöldi pysja er kominn upp í 2969 og ekki spurning að nú í vikunni verða þær komnar yfir 3000. […]

Hafsteinn Briem og Sigríður Lára best

Í gærkvöldi fór fram lokahóf ÍBV í Höllinni með pompi og prakt þar sem sumarið var gert upp. Hafsteinn Briem og Sigríður Lára Garðarsdóttir voru valin bestu leikmenn meistaraflokkanna í fótbolta. Fréttabikaranna hlutu þau Díana Dögg Magnúsdóttir og Sigurður Grétar Benónýsson. Hjá meistaraflokki karla var Jose Sito markahæstur og Bjarni Gunnarsson valinn ÍBV-ari. Hjá meistaraflokki […]

Fjórði sigurleikur ÍBV í röð

ÍBV sótti Aftureldingu heim í dag þegar sjötta umferð Olís deildar karla fór fram. ÍBV hafði betur í skemmtilegum leik 23-21 Leikurinn var í járnum fyrstu 10-15 mínúturnar en Eyjamenn sigu síðan fram úr með góðum varnarleik og frábærri markvörslu Stephan Nielsen en hann setti einfaldlega í lás á löngum köflum í leiknum. Staðan í […]

Ábending til farþega Herjólfs næstu daga

Spáð er hækkandi öldu seinni partinn á sunnudag 04.10.15 og fyrri part mánudags 05.10.15 því eru farþegar beðnir um að fylgjast með tilkynningum á vefsíðum okkar. Stefnt er að því að sigla fulla áætlun til Landeyjahafnar en í ljósi ölduspár gæti þurft að fella niður og/eða færa ferð/ferðir til �?orlákshafnar. Ef gera þarf breytingu á […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.