Jafntefli líklega sanngjörn úrslit

Það má segja að það hafi verið stál í stál þegar ÍBV og Þór/KA mættust á Hásteinsvelli í dag. Eyjastúlkur unnu 0:5 stórsigur á Akureyrarliðinu í fyrstu umferð Íslandsmótsins en leikurinn í dag var jafn og spennandi frá fyrstu mínútu. Segja má að Eyjastúlkur hafi verið ívið sterkari í fyrri hálfleik en Akureyringar í þeim […]

Erfiður leikur gegn �?ór/KA í dag

Karla- og kvennalið ÍBV eiga bæði erfiða leiki fyrir höndum í dag. Stelpurnar taka á móti Þór/KA, sem hefur verið að sækja í sig veðrið eftir slaka byrjun. Þær töpuðu m.a. fyrir ÍBV á Akureyri í fyrstu umferðinni 0:5 og vilja sjálfsagt hefna fyrir þær ófarir. ÍBV er sem stendur í þriðja sæti með 19 […]

Vallarstjórinn sigraði

Vallarstjórinn Örlygur Helgi Grímsson sigraði með nokkrum yfirburðum í Meistarmóti GV í dag. Örlygur lék þriðja og síðast hringinn á 69 höggum en alls lék hann á 209 höggum, sem er einu höggi undir pari vallarins. Næstur varð Rúnar Þór Karlsson sem lék á 215 höggum og Hallgrímur Júlíusson varð þriðji á 218 höggum. Síðasti […]

Bryggjudagur ÍBV og Böddabita í dag

Í dag er Bryggjudagur handboltadeildar ÍBV og Böddabita í húsnæði Fiskmarkaðarins í Friðarhöfn en opið verður milli 11 og 15. Fiskmarkaður Bryggjudagsins verður með fjölbreyttu úrvali fisktegunda, allt frá útvatnaðri skötu til tilbúinna rétta á grillið. Auk þess er núna í gangi dorgkeppni fyrir börn en hún hófst klukkan 10. Einnig verður sölubás á staðnum […]

�?rlygur Helgi með forystu fyrir síðasta hring

Örlygur Helgi Grímsson er með forystu í Meistaramóti Golfklúbbs Vestmannaeyja fyrir síðasta hring mótsins. Aflýsa þurfti fyrsta hringnum vegna veður og verða því aðeins leiknar 54 holur, eða þrír hringir. Örlygur hefur tveggja högga forystu á Rúnar Þór Karlsson sem var efstur eftir fyrsta hring. Örlygur lék hins vegar afar vel í gær og fór […]

Tveggja tíma seinkun á áætlun Herjólfs

Viðgerð, sem stóð yfir í nótt á stefnislokum Herjólfs er nú lokið. Skipið heldur af stað í sína fyrstu ferð núna klukkan 10:30 frá Vestmannaeyjum og 12:00 frá Landeyjahöfn. Allar ferðir skipsins í dag verða af þessum sökum tveim klukkutímum á eftir áætlun. (meira…)

Jón �?li besti þjálfarinn

Jón Ólafur Daníelsson var í dag útnefndur þjálfari 1. til 9. umferðar í Pepsídeild kvenna. Það voru sérfræðingar á vegum KSÍ sem völdu þjálfara, leikmann, stuðningsmenn, dómara og lið umferðanna. ÍBV átti einnig tvo leikmenn í liði 1. til 9. umferðar, þær Birnu Berg Haraldsdóttur, markvörð og varnarmanninn Elísu Viðarsdóttur. (meira…)

Jafnvel tafir á Herjólfi á morgun

Hugsanlega verða tafir á ferðum Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfi í fyrramálið vegna viðgerða. Eru þeir sem eiga pantað far með ferjunni í fyrramálið hvattir til að fylgjast með tilkynningum í fyrramálið þar sem verið er að gera við stefnuloku Herjólfs. (meira…)

Landeyjahöfn er samgöngubót

Í grein í Morgunblaðinu í dag hafði forstjóri Björgunar uppi stór orð um Landeyjahöfn. Að hans sögn á höfnin að vera hættuleg og kostnaðarsamt að hafa hana opna að vetrarlagi. Svipuð sjónarmið heyrðust vissulega í vetur þegar aðstæður í Landeyjahöfn voru erfiðar, mikið af gosefnum úr Eyjafjallajökli hafði borist fyrir höfnina en veður voru of […]

Settur á fót vinnuhópur til að skoða vandamálið

Japanskt og íslenskt fjármálafyrirtæki ákváðu að keppa í róðri á áttæringi. Liðsmenn frá báðum fyrirtækjum æfðu stíft og voru í toppformi þegar að sjálfri keppninni kom. Japanirnir urðu 1 km á undan íslenska fjármálafyrirtækinu. Eftir útreiðina var mórallinn að sjálfsögðu heldur slæmur í íslenska fyrirtækinu og yfirstjórnin ákvað að fyrirtækið yrði að vinna keppnina að […]

Athugasemdir vegna deiliskipulags við Löngulág

Félag kaupsýslumanna í Vestmannaeyjum vill koma á framfæri athugasemdum vegna deiliskipulags við Löngulág. Fjórar hugmyndir hafa verið kynntar bæjarbúum sem allar eru keimlíkar og því valið á milli sömu hugmyndar í fjórum mismunandi útgáfum. (meira…)

Skipulagsmál á malarvelli

Heimaey er lítil og falleg eyja, það er óumdeilt. Allar nýjar fram­kvæmdir kalla á að haft sé sem víðtækast samstarf við íbúa og hagsmunaaðila. Það gildir þó í ­þessum flokki að sitt sýnist hverjum og oft langt á milli fólks í skoðunum á nýjum framkvæmdum og því getur verið erfitt að gera öllum til hæfis. […]

Dæmin sýna að bregðast verður við strax

„Hvernig á að bjarga 300 börnum frá borði með þeim björgunarbúnaði sem er um borð í Herjólfi við þær aðstæður sem sköpuðust þegar skipið snerist um 30 gráður rétt utan við innsiglinguna í Landeyjahöfn 26. júní sl.? Talið er að snarræði skipstjórans hafi komið í veg fyrir stórslys.“ Þannig hefst bréf sem Friðrik Ásmundsson, fyrrverandi […]

Áhugi bæði í Eyjum og á fastalandinu

Í undirbúningi er Vestmannaeyja­hlaupið sem ætlunin er að verði árlegur viðburður. Í ár verður hlaupið þann 10. september nk. og verður ræst kl. 12:00. Vegalengdir verða þrjár, fimm kílómetrar, tíu kílómetrar og hálft maraþon sem er rúmlega 21 kílómetri. (meira…)

Valdimar með tónleika í kvöld

Hljómsveitin Valdimar heldur tónleika á Prófastinum í kvöld klukkan 20:00. Auk Valdimars mun hljómsveitin Kiriyama famyli stíga á stokk. Lag Valdimars, Brotlentur hefur verið eitt vinsælasta lag landsins síðustu misseri en blásturshljóðfæri setja svip sinn á lög sveitarinnar. Valdimar var auk þess tilnefnd bjartasta vonin á Íslensku Tónlistarverðlaununum 2011 en hér að neðan má hlusta […]

Rýr og léleg svör

Sæll Magnús. Aum eru orð þín og yfirklór. Það er ábyrgð að fara fram með hálfkveðnar vísur og halda svo að það sé bara hægt að ljúka leik þegar rök þrýtur. Í mínum bókum er það lítilmannlegt og gerir þig ekki að þeim kjarkmikla manni sem þú slærð þig til. Hástafaskrif eins og þegar talað […]

Meiri umferð í Eyjum

Straumur ferðafólks til Vestmannaeyja hefur stóraukist eftir að brúin yfir Múlakvísl fór í hlaupi um síðustu helgi, samkvæmt upplýsingum frá ferðamannamiðstöð bæjarins. ólk hefur breytt ferðaáætlunum sínum snarlega og farið til Vestmannaeyja með Herjólfi, sem siglir nú fimm sinnum á dag frá Landeyjahöfn. (meira…)

Bærinn á að byggja stúkuna

Tryggvi Már svarar að mestu leyti spurningum Magnúsar um dælingu peninga Bæjarins inn í ÍBV. Ef við tökum bara þá aðstöðu sem knattspyrnan býr við í dag utanhúss þá var það ekki Bærinn sem byggði þá aðstöðu heldur sjálfboðaliðar Knattspyrnufélagsins Týs og Íþróttafélagsins Þórs. Ég er handviss um að ef þessi félög hefðu ekki gert […]

Julie og Elínborg áfram með ÍBV

Elínborg Ingvarsdóttir og Julie Nelson skrifuðu í vikunni undir samning við ÍBV út tímabilið 2012. Þetta eru afar jákvæðar fréttir fyrir ÍBV því Nelson hefur sýnt það í sumar að hún er einn sterkasti varnarmaður deildarinn­ar og því lykilmaður í liði ÍBV. Nelson gekk í raðir ÍBV fyrir tímabilið en hún kemur frá Norður-Írlandi og […]

�?etta er til skammar

Breytingar á vaktafyrirkomulagi lögreglunnar í Vestmannaeyjum taka gildi á mánudag og hafa í för með sér að fimm daga vikunnar verður enginn lögreglumaður á vakt milli klukkan þrjú og sjö á nóttunni. Verða lögreglumenn á bakvakt á þessum tíma. Aðeins einn er á dagvakt í miðri viku en gert er ráð fyrir að annaðhvort yfirlögregluþjónn […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.