Forsendur í þessum málum eiga ekki við hjá okkur

Mjög hefur gustað um sparisjóði landsins og ýmislegt misjafnt komið í dagsljósið. Flestir þeirra fóru í þrot en nú er unnið að endureisn þeirra með aðkomu ríkisins. Mörg mál eru á leið fyrir dómstóla og víða hefur komið upp mikil óvissa um stöðu stofnfjáreigenda í sparisjóðunum sem tóku lán til að fjármagna kaup á auknu […]
Fundur um atvinnumál í hádeginu í dag

Samtök atvinnulífsins efna til opins fundar um atvinnumálin í Vestmannaeyjum föstudaginn 4. febrúar kl. 12-14. Fundurinn fer fram í Akóges-húsinu Hilmisgötu 15. Vilmundur Jósefsson, formaður SA og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, munu ræða um stöðuna í atvinnulífinu og yfirstandandi kjaraviðræður auk þess að svara fyrirspurnum. (meira…)
Hádegisfundur um flugmál

Á föstudaginn 11. febrúar næstkomandi verður hádegisfundur í fundaröðinni, Tækifæri atvinnulífsins, á Kaffi Kró og efni fundarins verður staða flugsamgangna við Vestmannaeyjar. Framsögumaður er Hörður Guðmundsson, forstjóri Flugfélagsins Ernis, sem mun að framsögu lokinni svara spurningum gesta. Það eru Nýsköpunarmiðstöð, Fréttir og Atvinnuþróunarfélag Suðurlands sem standa að fundinum og fundarstjóri er Hrafn Sævaldsson, ráðgjafi félagsins […]
Verkfall dæmt ólöglegt

Félagsdómur hefur dæmt boðað verkfall starfsmanna í loðnubræðslum ólöglegt. Verkfallið átti að hefjast 7. febrúar. Dómurinn taldi að ekki hefðu verið haldnir formlegir sáttafundir í deilunni áður en verkfallið var boðað. Verkfallið var boðað af Afli á Austurlandi og Drífanda í Vestmannaeyjum. Það átti að ná til loðnubræðslna á Vopnafirði, Seyðisfirði, Norðfirði, Eskifirði, Fáskrúðsfirði, Hornafirði […]
Skandia í vari við Skagen

Dæluskipið Skandia bíður nú af sér slæmt sjóveður við Skagen nyrst á Jótlandi í Danmörku. Þar með er ljóst að koma skipsins til Eyja mun tefjast enn frekar en fjölmörg skip eru nú á sömu slóðum og Skandia eins og sjá má á korti www.marinetraffic.com. (meira…)
Herjólfur siglir síðdegis

Herjólfur siglir síðdegis. Farið verður frá Eyjum klukkan 15:00 og frá Þorlákshöfn klukkan 19:00. Veður og ölduhæð er að ganga niður segir í tilkynningu frá Eimskip, rekstaraðila Herjólfs. (meira…)
Stóð aðeins í fjórar mínútur

„Já ég hugsa að þetta sé alveg áreiðanlega stysti bæjarstjórnarfundur í Vestmannaeyjum frá upphafi og jafnvel sá stysti sem haldinn hefur verið á landinu,“ sagði Elliði Vignisson um fund bæjarstjórnar sl. fimmtudag. Hann hófst klukkan 18.00 og var slitið fjórum mínútum síðar, klukkan 18.04. (meira…)
�?víst með seinni ferð Herjólfs

Herjólfur fór ekki í morgun til Þorlákshafnar enda var óveður í nótt og ölduhæð við Surtsey í morgun var rúmir níu metrar. Í tilkynningu frá Eimskip segir að athuga á með síðari ferð skipsins um hádegisbil í dag en veður- og ölduspá er slæm fyrir daginn. Því eru farþegar beðnir um að fylgjast með fréttum […]
Verkfall á mánudaginn?

Starfsmenn í fiskimjölsverksmiðjum í Vestmanneyjum, FES og FIVE, ásamt félagsmönnum í AFLi á Austurlandi hafa boðað til þriggja daga verkfalls frá og með næsta mánudegi 7. febrúar. Atvinnurekendur kærðu verkfallsboðunina til Félagsdóms og telja hana ólögmæta og vilja meina að samningur við starfsmenn fiskimjölsverksmiðja sé hluti af aðalkjarasamningi. Félagsdómur úrskurðar um hvort verkfallsboðunin er lögmæt […]
Verður tvo daga að opna Landeyjahöfn

Dæluskipið Skandia lagði af stað til landsins í morgun, miðvikudag en veður hafði seinkað brottfför um einhverja klukkutíma. Á þriðjudaginn var vitlaust veður við Hjaltlandseyjar og Færeyjar, tólf metra ölduhæð og spáin var jafnvel enn verri. Í góðu veðri hefði siglingin tekið fjóra sólarhringa. Seinkar Skandiu því um eina viku miðað við þær upplýsingar sem […]
Kristín Erna áfram hjá ÍBV

Knattspyrnukonan Kristín Erna Sigurlásdóttir skrifaði nú í hádeginu undir tveggja ára samning hjá ÍBV. Kristín Erna hefur leikið allan sinn feril hjá ÍBV en hún lék sinn fyrsta meistaraflokksleik sumarið 2007. Tölfræðin hjá henni er sannarlega glæsileg en Kristín Erna hefur spilað 52 leiki með ÍBV í Íslandsmótinu og bikarkeppninni og skorað 51 mark fyrir […]
Skandia er lögð af stað

Í gær sögðum við frá því að dæluskipið Skandia væri lagt af stað áleiðis til Íslands. Heldur var siglingin í styttra lagi því skipið lá sem fastast við bryggju í Assens í Danmörku. Hins vegar lagði skipið af stað í morgun, sólarhring seinna en áætlað var. Talsvert óveður er nú á siglingaleiðinni og má búast […]
Matt Garner með ÍBV út tímabilið

Eyjamenn tryggðu sér í dag áframhaldandi starfskrafta enska varnarmannsins Matt Garner. Garner hefur eingöngu leikið með ÍBV hér á landi, lék fyrst sumarið 2004 frá enska félaginu Crewe með liðinu og kom svo aftur til ÍBV sumarið 2006 og hefur leikið með liðinu síðan. Garner leikur öllu jöfnu í stöðu vinstri bakvarðar og þykir einn […]
Skandia lagt af stað áleiðis til Eyja

Dæluskipið Skandia er lagt af stað áleiðis til Vestmannaeyja frá Danmörku. Skipið fór í skoðun í gær en ekki er gott siglingaveður framundan og því viðbúið að skipið verði lengur á leiðinni en áætlað var. Í góðu veðri er þetta um fjögurra sólahringa sigling. Hins vegar er áætlað að það taki aðeins tvo daga að […]
100 fermetrar af þaki Vinnslustöðvarinnar flettist upp

Um 100 fermetra hluti af þaki Vinnslustöðvarinnar flettist upp í morgun en um er að ræða syðsta hluta hússins. Plöturnar fuku ekki af húsinu en fljótlega dreif að fólk til að fergja þær niður aftur. Björgunarfélag Vestmannaeyja var ræst út til aðstoðar en auk þeirra voru þarna smiðir sem voru að vinna í nálægum byggingum […]
Björgunarfélagið kallað út

Björgunarfélag Vestmannaeyja var nú rétt í þessu kallað út en talsverður vindur er nú í Eyjum, 27 metra meðalvindur en hviður á Stórhöfða fara upp í 34 metra á sekúndu. Björgunarfélagið hefur verið kallað að húsakynnum Vinnslustöðvarinnar við Strandveg en samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglu eru þakplötur að fjúka af húsinu. (meira…)
Glæsilegur árangur hjá Eyjakrökkunum

Um síðustu helgi fór fram Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum en mótið var haldið í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. Ungmennafélagið Óðinn sendi nokkra keppendur til leiks og náðu þau mjög góðum árangri. Ævar Örn Kristinsson vann tvenn bronsverðlaun, í 60 m. hlaupi og þrístökki og Rúnar Kristinn Óðinsson vann bronsverðlaun í hástökki. Í mótinu keppa sterkasta […]
Lögregla gómaði dreng á sextánda ári með kannabisefni

Síðastliðið föstudagskvöld vorur fjórir drengir á sextánda ári stöðvaðir við komu Herjólfs til Vestmannaeyja vegna gruns um fíkniefnamisferli. Við leit á einum þeirra fundust ætluð kannabisefni og viðurkenndu þeir allir að eiga aðild að málinu. Drengjunum var sleppt að lokinni skýrslutöku enda telst málið að mestu upplýst. Drengirnir hafa ekki komið áður við sögu lögreglu […]
Guðbjörg í úrvalsliði N1 deildar

Guðbjörg Guðmannsdóttir, hornamaðurinn sterki í ÍBV er í úrvalsliði N1 deildar en valið var tilkynnt nú í hádeginu. Um er að ræða úrvalslið 1. til 9. umferða N1 deildarinnar en Guðbjörg er eini leikmaðurinn í liðinu sem tilheyrir ekki toppliðunum þremur, Stjörnunni, Val og Fram. Liðið má sjá hér að neðan. (meira…)
60 ár síðan Glitfaxi fórst með 20 manns

Í Morgunblaðinu í dag er umfjöllun um hið hörmulega flugslys þegar Glitfaxi fórst með 20 manns 31. janúar 1951 í aðflugi á Reykjavíkurflugvelli en vélin var að koma frá Vestmannaeyjum. Vélin hefur aldrei fundist og lítið er vitað um ástæður slyssins en flestir farþeganna voru frá Eyjum. Lík þeirra fundust aldrei en yngsti farþeginn var […]