Síðari ferð fellur einnig niður

Seinni ferð Herjólfs í dag fellur einnig niður en áætlað var að sigla tvívegis til Þorlákshafnar. Skipið sigldi hins vegar ekki í morgun enda aftakaveður í Eyjum. Heldur hefur bætt í vind eftir því sem liðið hefur á daginn en mesta vindhviða á Stórhöfða hefur farið upp í 49 metra á sekúndu. Í tilkynningu frá […]

�?yrla sem sótti fyrirbura of dýr

Sjúkratryggingar Íslands kanna hvort Heilbrigðisstofnunin í Vestmannaeyjum hafi hugsanlega ekki farið eftir samningi um sjúkraflug þegar þyrla var send til Vestmannaeyja til að sækja fyrirbura. Lögfræðingur hjá sjúkratryggingum telur illa farið með fé skattborgara að greiða þrefalt meira fyrir þyrlu en hefðbundið sjúkraflug sé þess ekki þörf. (meira…)

Eins gott að hafa sterka vörn

Vestmannaeyjabær eins og sjálfsagt flest sveitarfélög, ekki hvað síst á landsbyggðinni heyja mikla varnarbaráttu fyrir sinni tilveru þessa mánuðina. Sparnaðaráform ríkisivaldsins knýja þar fast dyra og ýmis þjónusta, sem fram að þessu hefur verið talin sjálfsögð er allt í einu komin í uppnám. (meira…)

Herjólfur siglir ekki vegna veðurs

Ferð Herjólfs sem fyrirhuguð var til Þorlákshafnar í morgun, var felld niður vegna veðurs. Í fréttatilkynningu frá Eimskipum, rekstraraðila Herjólfs, segir að búast megi við að sama eigi við um ferðina síðdegis. Ákvörðun um seinni ferðina verður tekin um hádegi. (meira…)

Herjólfur siglir til �?orlákshafnar á morgun

Þar sem bæði veður- og ölduspá fyrir morgundaginn, fimmtudag er slæm hefur verið tekin ákvörðun um að Herjólfur muni eingöngu sigla til Þorlákshafnar. Siglt verður frá Vestmannaeyjum klukkan 7:30 og 15:00 og frá Þorlákshöfn klukkan 11:15 og klukkan 19:00. (meira…)

Á gulldeplu fram að loðnu

Hafrannsóknastofnun hefur lagt til að heildaraflamark loðnu á vertíð­inni verði samtals 200 þúsund tonn og af því fá Íslendingar tæp 140.000 tonn. Þar af er Vinnslustöðin með um 14 þúsund tonn og Ísfélag með 28 þúsund tonn en til samanburðar var heildarúthlutun fyrir íslensk skip 110.000 tonn í fyrra. Uppsjávar­skipin eru nú á gulldeplu en […]

Rússajeppi Matthíasar ekki í Eyjum

Undanfarna daga hefur lögregla auglýst eftir upplýsingum um Matthías Þórarinsson en Matthías er talinn vera á gömlum, frambyggðum rússajeppa, svipuðum þeim sem er á myndinni sem fylgir fréttinni. Íbúar í Vestmannaeyjum hafa séð einn slíkann á ferðinni í bænum en það mun ekki vera bíll Matthíasar. (meira…)

Aðstæður í Landeyjahöfn óhagstæðar strax í morgun

Fyrr í morgun var ákveðið að Herjólfur myndi ekki sigla fleiri ferðir í Landeyjahöfn en Herjólfur siglir seinni partinn til Þorlákshafnar. En þar sem veðurspá fyrir daginn var svo kolröng vaknar sú spurning hvort ekki sé fært fyrir skipið upp í Landeyjahöfn. Steinar Magnússon, skipstjóri á Herjólfi segir hins vegar að aðstæður í Landeyjahöfn hafi […]

Ekki spáð 62 metrum á sekúndu á morgun

Eins og lesa mátti út veðurspá Veðurstofunnar á vefnum www.vedur.is stefndi allt í mannskaða veður í Vestmannaeyjum á morgun. Samkvæmt spánni, sem er sjálfvirk, átti veðurhamurinn að ná hámarki klukkan 18:00 á morgun og átti meðalvindhraði þá að vera 62 metrar á sekúndu, hvorki meira né minna. Til samanburðar þá er fárviðri 32,7 metrar, sem […]

Ekki siglt meira í Landeyjahöfn í dag

Ekki verður siglt meira í Landeyjahöfn í dag, miðvikudag. Herjólfur siglir seinni partinn til Þorlákshafnar og verður lagt af stað frá Eyjum klukkan 15:00 og til baka til Vestmannaeyja klukkan 19:00. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskip, rekstraraðila Herjólfs. Spáð er fárviðri þegar líður á daginn og enn verra veðri á morgun, fimmtudag en […]

Bílarnir skemmdust í óveðrinu

Milljóna tjón varð á bílum sem stóðu við Landeyjahöfn síðustu helgi en þá gekk mikið óveður yfir. Bíleigandi segir ólíklegt að tryggingar bæti nokkuð og varar fólk við að geyma bíla sína við höfnina ef hvasst er. Flestum er í fersku minni óveðrið mikla sem gekk yfir landið síðastliðinn föstudag. Mikið tjón varð víða um […]

Góður sigur á FH í Hafnarfirði

ÍBV hafði betur gegn FH í leik liðanna í Kaplakrika í kvöld. Lokatölur urðu 24:25 en staðan í hálfleik var 13:10 Hafnfirðingum í vil. Fyrir aðeins tveimur dögum síðan tapaði ÍBV stórt fyrir Val, 44:18 eða með 26 mörkum en stelpurnar voru ekki lengi að hrista það tap af sér og unnu eins og áður […]

Vinna hafin við varnargarða vestan Markarfljóts

Nýhafin er vinna við gerð bráðabirgða varnargarðs vestan Markarfljóts sem færir farveg þess austur um 400 metra síðasta spölinn til sjávar. Með því er fljótinu veitt austur fyrir sandnes, sem er yfir milljón rúmmetrar og myndaðist við hlaup vegna eldgossins sl. vor, en þá gekk fjaran fram um nær 500 metra. (meira…)

Kári spilaði sig inn í HM-hópinn

Eyjamaðurinn hressi Kári Kristján Kristjánsson er í landsliðshópi Íslands í handbolta sem tekur þátt í Heimsmeistaramótinu í Svíþjóð. Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari tilkynnti hóp sinn fyrr í kvöld en í honum eru 17 leikmenn. Kári þótti spila mjög vel í síðari æfingaleiknum gegn Þjóðverjum en sú frammistaða skilaði Kára inn í lokahópinn fyrir stærsta mót ársins. […]

Lokaður inni fyrir að hanga í landfestum

Það var í nógu að snúast hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í síðustu viku enda stór helgi að baki. Einn karlmaður fékk að gista fangageymslu eftir að hafa gert sér það að leik að hanga í landfestum Álseyjar VE en sökum ástands hans var ekki annað hægt en að láta hann sofa úr sér í fangageymslu. […]

Líkamsmeiðingar, árekstrar, þjófnaður, óveður og fylliríisrugl

Það var töluverður erill hjá lögreglunni í vikunni sem leið og þá sérstaklega um helgina. Nokkuð var um handalögmál við skemmtistaði bæjarins en þrátt fyrir það hefur aðeins einn aðili kært líkamsárás. Þá var nokkuð um útköll vegna þess óveðurs sem gekk yfir landið liðinni viku en engar alvarlegar skemmdir urðu sem rekja má til […]

Verður þú ekki örugglega með í Peyjabankanum?

Leikmenn meistaraflokks karla standa nú sem fyrr, fyrir hinum margrómaða Peyjabanka. Um er að ræða getraunaleik handboltans þar sem giskað er á úrslit í Heimsmeistaramótinu í handbolta sem hefst í Svíþjóð í lok vikunnar. Þetta er sjöunda árið í röð sem Peyjabankinn verður starfræktur en vegleg sigurlaun eru í boði. (meira…)

Eivör á leið til Eyja

Þann 3. mars næstkomandi mun hin magnaða og frábæra lista- og söngkona Eivör Pálsdóttir heiðra okkur með nærveru sinni. Eivör mun halda eina tónleika hér í Eyjum og gefst fólki kostur á að hlýða á magnaðan fluttning þessarar frábæru söngkonu á um 90 mínútna tónleikum þar sem t.d. mun heyrast „Ég veit þú kemur“ í […]

Ráðist á ljósmyndara Eyjafrétta

Ráðist var á ljósmyndara Eyjafrétta.is þar sem hann var við störf á malarvellinum við Löngulág á laugardagskvöldið. Hrottarnir voru þrír saman, voru reyndar fastir saman í einum líkama og ófríðir með afbrigðum. Ljósmyndarinn náði að taka myndband af árásinni sem má sjá hér að neðan en árásina má sjá þegar 36 sekúndur eru liðnar af […]

Stórglæsileg �?rettándahátíð

Þrettándahátíðin í Vestmannaeyjum er að festa sig í sessi sem vegleg bæjarhátíð sem stendur yfir í þrjá daga með veglegri dagskrá fyrir alla aldurshópa. Hápunkturinn er að sjálfsögðu Þrettándagleði ÍBV þar sem jólasveinar, álfar og tröll ganga fylktu liði frá Hánni og upp á malarvöllinn við Löngulág þar sem kveikt er á bálkesti, skotið upp […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.