Mjög fjölmennur fundur á Selfossi í kvöld

Mikið fjölmenni var á opnum stjórnmálafundi Vinstrihreyfingarinnar- græns framboðs á Selfossi í kvöld með Steingrími J. Sigfússyni alþingismanni og formanni VG og Jóni Hjartarsyni bæjarfulltrúa VG í Árborg. Steingrímur flutti yfirgripsmikla ræðu um stöðu þjóðfélagsmála á Íslandi nú um stundir undir yfirskriftinni Fortíð – nútíð – framtíð” en Jón ræddi bæjarmál í þessari stöðu. Á […]

Góð aflabrögð, þegar gefur

Aflabrögð hjá trillum og togskipum hafa verið góð að undanförnu þegar gefið hefur, en veður hefur sett nokkuð strik í reikninginn. Þá hefur verð á Fiskmarkaði Vestmannaeyja verið gott. (meira…)

�?Fjarskanistanfarar�? – fyrirlestrar

Egill Bjarnason, blaðamaður á Sunnlenska fréttablaðinu og Yousef Ingi Tamimi halda fyrirlestra í Sunnlenska bókakaffinu í kvöld, fimmtudag 30. október kl. 20.30. Egill fjallar um lífið í Afganistan, Pakistan og Íran í máli og myndum en hann ferðaðist um löndin í fjóra mánuði fyrr á þessu ári. Yousef segir frá ástandinu í hertekinni Palestínu og […]

Fortíð- Nútíð- Framtíð

Opinn stjórnmálafundur Vinstrihreyfingarinnar- græns framboðs í Árborg með Steingrími J. Sigfússyni alþingismanni og formanni VG og Jóni Hjartarsyni bæjarfulltrúa VG í Sveitarfélagunu Árborg verður á Hótel Selfoss í kvöld fimmtudaginn 30. október kl. 20.00 Dagskrá: (meira…)

Síld í Ísfélaginu

Júpíter ÞH kom til hafnar í Vestmannaeyjum um tvöleytið á sunnudag með um 850 tonn af Íslandssíld sem veiddist í Breiðafirðinum. Síldin fer að langmestu leyti til vinnslu í frystihúsi félagsins í Eyjum. (meira…)

Núverandi Herjólfur notaður áfram

Útlit er fyrir að nota verði núverandi Herjólf til bráðabirgða, þegar siglingar hefjast milli nýrrar Landeyjahafnar og Vestmannaeyja eftir tæp tvö ár. Búast má við að frátafir verði tvöfalt meiri en þegar nýja ferjan kemur. (meira…)

Breskir fisksalar tryggðu gjaldeyrinn

Breskir fisksalar á Humbersvæðinu gengu í að koma gjaldeyrisfærslum til Íslands í lag. Tilgangur þeirra var að tryggja áframhaldandi fiskútflutning frá Íslandi. Gjaldeyrisstreymi að og frá Íslandi hefur verið allt að því alstíflað undanfarnar vikur í kjölfar bankahrunsins. (meira…)

Gunnlaugur skrifar undir samning við Selfoss

Í dag var gert kunnugt að Gunnaugur Jónsson yrði næsti þjálfari Selfyssinga í knattspyrnu. Gunnlaugur sem gerði garðinn frægan uppi á Skaga og í vesturbænum hjá KR, mun auk þess að þjálfa Selfoss, spila með þeim næsta sumar. Við þetta sama tækifæri skrifuðu þeir Ómar Valdimarsson aðstoðarþjálfari, Trausti Hrafnsson sjúkraþjálfari og Halldór Björnsson markmannsþjálfari undir […]

Góð sala á kjöti í september

Góð sala var á kjöti í september síðastliðnum. Samanborið við saman tíma í fyrra er aukningin 13,5%. Mest munar um 40% meiri sölu á svínakjöti en á sama tíma í fyrra. Þetta virðist mega skýra í ljósi þess að framleiðsla og sala svínakjöts í september 2007 var mun minni en í ágúst og október sama […]

Heiðurshryssa Suðurlands 2008

Á folaldasýningu Hrossaræktarsamtaka Suðurlands þann 25. október s.l. var heiðurshryssa Suðurlands árið 2008 heiðruð en það er Brúða frá Gullberastöðum Hún er í eigu Guðrúnar Helgu Þórisdóttur í Skeiðháholti en fædd Sigrúnu Árnadóttur sem nú býr í Borgarnesi. Brúða er dóttir Ófeigssonarins Snarfara frá Gullberastöðum en móðir hennar Urður er af Hornafjarðarstofni undan Skuggasyninum Baldri […]

Getspakir Selfyssingar

Selfyssingar hafa verið óvenju getspakir nú í haust og voru m.a. tveir með 13 rétta í þar síðustu umferð og einn spekingur var með 13 rétta í síðustu umferð og fékk sá einstaklingur nokkur hundruð þúsund í sinn vasa. Alltaf er boðið upp á kaffi og með því í Tíbrá á milli kl 11.00-13.00 á […]

,,Ástin á norðrinu�?

Í tilefni af Safnahelgi á Suðurlandi 7.- 9. nóv. 2008 og Norrænu bókasafnavikunni 10. -15. nóv. n.k. verður efnt til óvenjulegrar sýningar í Listagjá Bæjar-og héraðsbókasafnsins á Selfossi. Þemað verður ,,Ástin á norðrinu” – hvernig sem hver og einn upplifir eða skilur það. (meira…)

Saklaust ungmenni á Selfossi geymir bifhjól

Á föstudag komust lögreglumenn á snoðir um að verið væri að mála bifhjól í bílskúr á Selfossi. Grunsemdir vöknuðu um að hjólið væri stolið. Í ljós kom að hjólinu hafði verið stolið í Reykjavík og þjófurinn fengið saklaust ungmenni á Selfossi til að geyma hjólið. Sá grunaði var handtekinn og yfirheyrður ásamt manni sem handtekinn […]

Kastaði pakkanum yfir girðinguna.

Þrír karlmenn voru handteknir á Eyrarbakka síðastliðið miðvikudagskvöld. Þeir voru grunaðir um að hafa kastað fíkniefnum inn á lóð fangelsisins á Litla Hrauni. Við leit á svæðinu fannst pakki sem innihélt hvítar töflur og duft. Þetta reyndist vera amfetamín, tæplega 150 töflur og lítilræði af dufti. Einn hinna handteknu viðurkenndi að hafa verið með efnin […]

�?rjú skip losnuðu í óveðrinu

Það var öllu rólegra hjá lögreglu í vikunni sem leið en undanfarnar vikur. Lögreglan þurfti þó að sinna nokkrum útköllum vegna þess óveðurs sem gekk yfir landið aðfaranótt 24. október sl., en m.a. höfðu þrjú skip losnað en í öllum tilvikum tókst að koma í veg fyrir tjón. Auk þess aðstoðaði lögreglan, að vanda, gesti […]

Guðmundi VE skipað í land

Togararnir Hákon EA, Vilhelm Þorsteinsson EA, og Guðmundur VE eru nú á leið í eftirlitsstöð skammt frá Tromsö í Noregi ásamt færeyska togaranum Nordborgin. Norska strandgæslan kom að togurunum inni á svæði sem nýlega hafði verið lokað. (meira…)

Gengust við innbrotum í Eyjum

Fimm ungmenni, sem handtekinn voru í síðustu viku vegna rannsóknar á innbrotum í Árnessýslu, reyndust hafa verið umsvifameiri en fyrst var talið. Tveir úr hópnum viðurkenndu að hafa framið innbrot í söluskálann Árborg við Árnes. Þá gengust þeir við nokkrum innbrotum í Vestmannaeyjum frá því í haust og hafa verið þar til rannsóknar. (meira…)

Verðbólgan er 15,9%

Ársverðbólgan er nú 15,9% en var 14% fyrir mánuði. Þetta er mesta ársverðbólgan síðan í maí 1990. Vísitala neysluverðs hækkaði um 2,16% frá því í síðasta mánuði. Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 4,3% og verð á fötum og skóm um tæp 5%. Þetta kemur fram á vef hagstofunnar. (meira…)

Gjörningalistahópur í sundlauginni í Laugaskarði

Fjöllistakonan Kitty Von-Sometime fékk afnot af sundlauginni í byrjun október fyrir myndatökur með gjörningalistahópinn sinn Wired girls, skrýtnar stelpur. Þennan fallega haustdag fóru um svæðið 16 hafmeyjar sem voru myndaðar bæði á landi og í vatni. Undir –meira- sjá brot af myndunum sem voru teknar af Herði Ellerti Ólafssyni. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.