Bað pabba sinn um hjálp – hinn dreymdi um stærra heimili
lotto
Mynd/samsett

Tveir spilarar voru heppnastir allra í Lottó um síðustu helgi þegar þeir skiptu með sér sjöföldum fyrsta vinningi og hlutu rúmlega 79,3 skattfrjálsar milljónir hvor. Í tilkynningu frá Íslenskri getspá segir að annar vinningshafinn sé búsettur á Suðurnesjum, hinn á Norðurlandi og báðir keyptu miðana sína á netinu. „Hvorugt þeirra vissi af vinningnum þegar við náðum í þau. Gleðisímtölin bárust á mánudagsmorgni og voru í senn óvænt og eftirminnileg.”

Fyrri vinningshafinn, tæplega fimmtug fjölskyldukona, brast í grát af gleði þegar hún fékk fréttirnar í símanum. „Þessi vinningur gæti hreinlega ekki komið á betri tíma,“ sagði hún. Hún valdi tölurnar sjálf, eins og hún gerir alltaf, en í þetta skiptið horfði hún á mynd af föður sínum sem féll frá fyrr á árinu og bað hann um að hjálpa sér. „Þessi mánudagur er örugglega minn besti eða næstbesti mánudagur til þessa,“ bætti hún við og hló: „Vá, hvað minn maður verður ánægður með mig núna!“

„Nú get ég loksins borgað upp námslánin og hjálpað börnunum með þeirra nám – en fyrsta verkið verður að endurnýja bílinn sem hefur beðið alltof lengi,“ sagði hún og bætti við að hún trúði varla eigin heppni.

„Getum við í alvörunni núna stækkað við okkur?“

Hinn vinningshafinn er karlmaður rétt um fertugt. Fjölskyldan hefur stækkað ört og því lengi verið kominn tími á stærra heimili. Þau hjónin hafa verið að skoða allmikið undanfarið en sáu ekki fram á að ráða við kaupin þar til nú. „Getum við í alvörunni núna farið og stækkað við okkur?“ var fyrsta setningin sem eiginkonan sagði við hann þegar gleðifréttirnar bárust. Með vinningnum breytist staðan algjörlega, og fjölskyldan getur nú loksins látið drauminn um stærra heimili rætast á öruggum grunni.

„Þetta breytir öllu – nú getum við loksins látið drauminn um stærra heimili rætast,“ sagði hann.

Við óskum vinningshöfunum báðum innilega til hamingju og þökkum um leið veittan stuðning – sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk, sem og íþrótta- og ungmennafélögin í landinu, þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó.

Nýjustu fréttir

Elliði með fimm mörk í stórsigri Íslands
Herjólfur í Þorlákshöfn í dag og á morgun
Orkumálin til skoðunar hjá ráðherra
Dagvistunarmál til umræðu á fundi fræðsluráðs
Veit Inga hvað hún syngur?
Norðurinngangur við sjúkrahúsið opinn á ný
Viðhorf til bæjarstjóra í brennidepli í nýrri könnun
Vinnustofur í stað líkamsræktar?
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.