Nú liggur endanlega fyrir að Íslandsmeistarar ÍBV í handbolta munu leika báða leikina gegn ísraelska liðinu Maccabi Rishon Lezion í fyrstu umferð EHF-keppninnar á heimavelli. Ákveðið var í gær að leikirnir fari fram 13. og 14. september að því að fram kemur í Morgunblaðinu í dag. Vegna átakanna milli Ísraela og Palestíunamanna ákvað EHF (Evrópska hantknattleikssambandið) að Ísraelsmenn mættu ekki leika heimaleiki sína í Ísrael. Tveir möguleikar voru því í stöðunni, að leika báða leikina í Eyjum eða að útileikurinn yrði einhversstaðar annarsstaðar í Evrópu. Fyrri kosturinn varð sem sagt ofan á.
�??�?etta lið lék við FH í forkeppni Meistaradeildar fyrir þremur árum og vann þá með eins marks mun í hörkuleik. Eftir því sem ég kemst næst er þetta lið sem við eigum að geta unnið. �?g á von á tveimur hörkuleikjum og að þetta verði skemmtilegt verkefni fyrir okkur áður en Íslandsmótið hefst,�?? segir Gunnar Magnússon, þjálfari ÍBV í samtali við Morgunblaðið og bætir því við að sigurliðið mætir norska liðinu Elverum í annarri umferð keppninnar.