Báðir leikirnir í Eyjum
Nú liggur endanlega fyrir að Íslandsmeistarar ÍBV í handbolta munu leika báða leikina gegn ísraelska liðinu Maccabi Rishon Lezion í fyrstu umferð EHF-keppninnar á heimavelli. Ákveðið var í gær að leikirnir fari fram 13. og 14. september að því að fram kemur í Morgunblaðinu í dag. Vegna átakanna milli Ísraela og Palestíunamanna ákvað EHF (Evrópska hantknattleikssambandið) að Ísraelsmenn mættu ekki leika heimaleiki sína í Ísrael. Tveir möguleikar voru því í stöðunni, að leika báða leikina í Eyjum eða að útileikurinn yrði einhversstaðar annarsstaðar í Evrópu. Fyrri kosturinn varð sem sagt ofan á.
�??�?etta lið lék við FH í for­keppni Meist­ara­deild­ar fyr­ir þrem­ur árum og vann þá með eins marks mun í hörku­leik. Eft­ir því sem ég kemst næst er þetta lið sem við eig­um að geta unnið. �?g á von á tveim­ur hörku­leikj­um og að þetta verði skemmti­legt verk­efni fyr­ir okk­ur áður en Íslands­mótið hefst,�?? seg­ir Gunn­ar Magnússon, þjálfari ÍBV í samtali við Morgunblaðið og bætir því við að sigurliðið mætir norska liðinu Elverum í annarri umferð keppninnar.

Nýjustu fréttir

Bein útsending: Staða ferðaþjónustunnar rædd við þingmenn
Skipulag við Strandveg 44 til bæjarstjórnar
Skjöldur í þriðja sinn 
Er verið að leggja landsbyggðarskatt á okkur?
Borkjarnar á fyrirhuguðu dýpi Eyjaganga betri en vænst var
Vilja vernda einstakt lífríki sunnan Íslands
Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna
Brottför seinni ferðar flýtt vegna versnandi veðurs
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.