Bæjarbúum boðið á Karnival
Í dag bjóða unglingar á landsmóti �?SK�? Eyjamönnum og börnum á fjörugt og skemmtilegt fjölskyldu-karnival í Höllinni frá kl.14.30-16.00.
Á Karnivalinu verður hægt að kaupa nýbakaðar vöfflur, kaffi og meðlæti, sælgæti og fleira. Fyrir börnin bjóðum við upp á leikjabása, þrautir, andlitsmálun, armbandagerð og margt fleira. Dans og söngatriði frá unglingunum á sviðinu.
Allur ágóði af sölu á Karnivalinu rennur óskiptur í Pollasjóð og Hemmasjóð Hjálparstarfs kirkjunnar. Pollasjóður styrkir börn efnalítilla foreldra til tónlistarnáms og er kenndur við hina litríku hljómsveit Pollapönk, Hemmasjóður styrkir börn til íþróttaiðkunar og er kenndur við knattspyrnumanninn og eyjamanninn Hermann Hreiðarsson

Nýjustu fréttir

Lúkas Goði – Stefnan tekin á atvinnumennsku
Alexandra Ósk – Þetta líður miklu hraðar en þú heldur
Vilja að hafinn verði undirbúningur að smíði nýrrar ferju
ÍBV sækir Víking heim á morgun
Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun
Meistaramót GV hefst á morgun
Ölduhæð raskar samgöngum – aðeins ein ferð farin það sem af er deginum
Myndasyrpa frá göngumessu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.