Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Í erindi til bæjarráðs segir Þröstur að aðgengi að húsinu hafi verið lokað beggja vegna í um tvo mánuði. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Bæjarráð Vestmannaeyja tók fyrir á síðasta fundi sínum erindi frá Þresti B. Johnsen þar sem hann krafðist skaðabóta vegna framkvæmda við gatnagerð austan við Alþýðuhús.

Þröstur telur að framkvæmdirnar hafi valdið rekstrarskaða. Í erindi sínu til bæjarráðs segir hann að aðgengi að húsinu hafi verið lokað beggja vegna í um tvo mánuði í sumar, haust og fram á vetur, án þess að hann hafi verið upplýstur fyrirfram.

Hann óskaði eftir að sveitarfélagið greiddi skaðabætur sem hann hefur reiknað út og að upphæðin yrði skuldajöfnuð upp í fasteignagjöld.

Bæjarráð taldi hins vegar ekki forsendur til að verða við erindinu. Í bókun ráðsins kemur fram að gatnagerð sé lögbundið verkefni sveitarfélaga og að slíkar framkvæmdir leiði ekki einar og sér til bótaskyldu. Kröfu um skaðabætur og skuldajöfnun var því hafnað.

Nýjustu fréttir

Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Laxey rís í Vestmannaeyjum
Arnór bestur í tapi Karlskrona
Rangur loki tafði prófanir á sundlaugarkerfi
ÍBV sækir Hauka heim
Eyþór Harðarson efstur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.