Bergur með góðan túr
Bergur VE
Bergur VE við bryggju í Eyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Ísfisktogarinn Bergur VE landaði fullfermi í Vestmannaeyjum í gærmorgun. Rætt er við Ragnar Waage Pálmason skipstjóra á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Þar er hann fyrst spurður um samsetningu aflans.

„Í þessum túr var aflinn mest ýsa og síðan töluvert af kola og steinbít. Það var hins vegar lítið af þorski í aflanum og staðreyndin er sú að menn eru að spara þorskinn. Við byrjuðum túrinn á Mýragrunni en þar var heldur rólegt fiskirí. Síðan var haldið á Lónsbugtina og þar fékkst bæði ýsa og koli. Um tíma var bölvað óveður á meðan við vorum í Lónsbugtinni. Versta veðrið stóð í rúman sólarhring og þá sló hann upp í 30 metra. Við héldum síðan á Mýragrunn á ný og tókum tvö síðustu holin þar,” segir Ragnar Waage.

Bergur hélt á ný til veiða strax að löndun lokinni og var stefnan tekin í Skerjadýpið en þangað á að sækja karfa.

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.