Birting á námsframvindu barna í lesskilningi, stærðfræði og lesfimi
barn_ad_lesa
Barn við bókalestur. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Niðurstöður nýrra stöðu- og framvinduprófa Matsferils í lesskilningi og stærðfræði munu verða birtar opinberlega eftir skólum samkvæmt reglugerð sem mennta- og barnamálaráðherra hefur nú gefið út. Jafnframt hafa niðurstöður lesfimi grunnskólabarna undanfarin fimm ár nú verið birtar í fyrsta sinn og eru þær birtar eftir sveitarfélögum. Frá þessu er greint í tilkynningu frá mennta- og barnamálaráðuneytinu.

Markmiðið með birtingu framangreindra upplýsinga, þ.e. annars vegar úr lesfimiprófum og hins vegar úr nýjum prófum í lesskilningi og stærðfræði, er að auka gagnsæi og fá heildstæða yfirsýn yfir námsframvindu barna.

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, leggur ríka áherslu á opinbera birtingu á námsframvindu barna til að unnt sé að fylgjast betur með þróuninni: „Án sýnilegra mælikvarða stefnum við blint. Við þurfum fleiri mælikvarða og að hafa upplýsingarnar uppi á borðinu, fyrir börn, kennara og foreldra en ekki síður fyrir stjórnvöld, sveitarfélög, og skólastjórnendur. Þannig fáum við betri möguleika til að greina þróun milli ára, sjá hvar íhlutun gæti skilað mestum árangri og fylgjast með áhrifum aðgerða, til dæmis með snemmtækri íhlutun og meiri stuðningi til að ná betri námsárangri. Nú munum við rýna betur í þessar niðurstöður sem og þær niðurstöður sem við eigum eftir að fá úr samræmda Matsferlinum til að opna umræðuna um hvað við getum gert betur og hvar.”

Lesfimi birt eftir sveitarfélögum

Lesfimiprófin meta nákvæmni og hraða lestrar. Þau voru tekin í notkun árið 2016 og eru nú hluti af Matsferli. Prófin eru lögð fyrir þrisvar á hverju skólaári, í september, janúar og maí, og eru hér birtar niðurstöður lesfimiprófa í byrjun og lok hvers skólaárs á árunum 2020–2025. Heilt yfir sýnir þróunin lækkun í hlutfalli barna sem ná lágmarksviðmiði í lesfimi frá 2020 til 2024 en lítilsháttar hækkun á síðasta skólaári (2024–2025) sem nær þó ekki upp í hlutfallið í byrjun tímabilsins.

Niðurstöðurnar sýna að mikill munur er á sveitarfélögum í frammistöðu. Stærri sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu virðast standa betur en mörg minni sveitarfélög á landsbyggðinni. Þau eru með jafnari árangur og almennt lægra hlutfall á 1. viðmiði en hærra á 3. viðmiði (hæsta viðmið lesfimi). Lágmarksviðmið er að nemendur nái a.m.k. 2. viðmiði og er hlutfall nemenda sem ná lágmarksviðmiði hæst á Seltjarnarnesi eða 90–93% frá 2020. Munurinn á hlutfalli þeirra sem ná lágmarksviðmiði í sterkustu og veikustu sveitarfélögunum er allt að 35–40 prósentustig.

Auk þess má greina meiri sveiflur í árangri hjá minni sveitarfélögum – þessi munur á milli sveitarfélaga skýrist þó að einhverju leyti af stærð hópa, en vægi hvers einstaklings er mikið í litlum hópum og niðurstöður sveiflast því oft mikið á milli ára. Því er óvarlegt að draga sterkar ályktanir um mun á milli sveitarfélaga byggt á þessum niðurstöðum.

Hæstu sveitarfélögin (80% og hærri) í hlutfalli grunnskólabarna sem nær skilgreindu lágmarksviðmiði í lestrarhraða á lesfimiprófi í maí 2025:

  1. Seltjarnarnes 93%
  2. Garðabær 85%
  3. Fjallabyggð 84%
  4. Mosfellsbær 84%
  5. Kópavogur 82%
  6. Svalbarðsstrandarhreppur 82%
  7. Snæfellsbær 82%
  8. Akranes 80%
  9. Norðurþing 80%
  10. Vestmannaeyjabær 80%
  11. Akureyri 80%
  12. Reykjavík 80%

 

Benda má á að lesfimiprófið sem fjallað er um hér að framan mælir eingöngu lestrarhraða en ekki lesskilning. Jafnframt er mikilvægt að taka fram að rannsóknir gefa til kynna fylgni milli menntunarstigs og félagsstöðu foreldra og námsárangurs barna. Því getur menntunarstig og félagsstaða íbúa í ákveðnum sveitarfélögum haft umtalsverð áhrif til hækkunar á námsárangri í því sveitarfélagi og má sjá vísbendingar um það í niðurstöðunum. Einnig er tekið fram að ekki eru birtar niðurstöður þegar færri en tíu nemendur eru í hópi.

Þátttaka grunnskóla í lesfimiprófum er valfrjáls. Að jafnaði hefur lesfimiprófið verið lagt fyrir um 90% grunnskólanema á landinu. Fjölmargar rannsóknir sýna að sterk tengsl eru milli lesfimi og lesskilnings og með því að bæta lesfimi nemenda eflist lesskilningur jafnframt.

Birting stöðu og framfara í lesskilningi og stærðfræði

Fyrirhuguð birting niðurstaðna úr stöðu- og framvinduprófum Matsferils í lesskilningi og stærðfræði var kynnt til umsagnar í Samráðgátt stjórnvalda í janúar. Birting hefst vorið 2027 og nær til skyldubundinna fyrirlagna í 4., 6. og 9, bekk. Hægt verður að skoða niðurstöður niður á landsvæði, sveitarfélög og skóla og sjá þróun á milli ára. Matsferill er nýtt safn verkfæra sem metur stöðu og framfarir barna á tíðari og fjölbreyttari hátt en áður.

Hér að neðan má sjá niðurstöður úr lesfimiprófum frá árinu 2020 í Vestmannaeyjum. Hér má sjá öll sveitarfélögin.

Vestmannaeyjabær

Septembermælingar

Skólaár 1. viðmið 2. viðmið 3. viðmið Nær lágmarksviðmiði (2+3)
2020–2021 16% 63% 21% 84%
2021–2022 17% 62% 22% 83%
2022–2023 18% 64% 18% 82%
2023–2024 23% 62% 15% 77%
2024–2025 18% 64% 18% 82%

Maímælingar

Skólaár 1. viðmið 2. viðmið 3. viðmið Nær lágmarksviðmiði (2+3)
2020–2021 12% 62% 25% 88%
2021–2022 15% 65% 20% 85%
2022–2023 20% 62% 17% 80%
2023–2024 18% 66% 16% 82%
2024–2025 20% 59% 21% 80%

Nýjustu fréttir

Birting á námsframvindu barna í lesskilningi, stærðfræði og lesfimi
Undankeppni Stíls á morgun
Versnandi afkoma bæjarins
Nýtt líf og Leikfélag Vestmannaeyja
Tveir dæmdir eftir þjófnað úr dósagámi ÍBV
Aglow samvera í kvöld
Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.