Bjarni hættir hjá SASS
Bjarni SASS
Bjarni Guðmundsson.

Stjórn SASS og Bjarni Guðmundsson framkvæmdastjóri hafa komist að samkomulagi um starfslok hans hjá samtökunum. Bjarni, sem hefur verið framkvæmdastjóri SASS í tíu ár, hefur þegar látið af störfum. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu SASS.

„Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri til að byggja upp samtök sveitarfélaga á Suðurlandi sem sinna mikilvægu hlutverki í byggðaþróun. Ég er stoltur af þeim árangri sem samtökin hafa náð í þessum grósku- og kraftmikla landshluta. Framtíðin er svo sannarlega björt fyrir Sunnlendinga og tækifærin fjölbreytileg í atvinnumálum, listum og menningu,“ segir Bjarni. „Góður árangur við að gæta hagsmuna sveitarfélaga og íbúa Suðurlands, sem hefur stuðlað að jákvæðri byggðaþróun, hefði ekki náðst nema með samhentu átaki allra. Ég þakka starfsfólki og stjórnarmönnum SASS, kjörnum fulltrúum í sveitarstjórnum, íbúum og forráðamönnum fyrirtækja fyrir samstarfið á liðnum árum.“ segir Bjarni.

„Stjórn SASS þakkar Bjarna Guðmundssyni fyrir framlag hans við að styrkja stoðir atvinnu- og mannlífs á Suðurlandi og óskar honum velfarnaðar í því sem hann tekur sér fyrir hendur,“ segir Anton Kári Halldórsson, stjórnarformaður SASS.

Nýjustu fréttir

Athugasemd
Dísa leiðir Eyjalistann
Kvenfélagið Líkn færði HSU veglega gjöf
Loðnan tengir saman Vestmannaeyjar og Japan
Listir og menning í Framhaldsskóla Vestmannaeyja
Lestur ársreiknings bæjarins gefur allt aðra mynd
Ísólfur Gylfi – 42 ár frá Helliseyjarslysinu
Bæjarráð samþykkir að selja hlut í Landsbankanum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.