Breytingin liður í því að bæta þjónustu við íbúa
ithrottam
Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Breytingar eru framundan hjá World Class í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Frá og með mánudeginum næstkomandi verður opnað klukkan 06:15 á morgnana og jafnframt hefjast framkvæmdir við verulega stækkun á núverandi æfingasal.

Frá og með mánudeginum 24. nóvember mun World Class opna kl. 06:15. Breytingin er liður í því að bæta þjónustu við íbúa og koma enn betur til móts við þarfir þeirra, að því er segir á vef Vestmannaeyjabæjar. Þar segir ennfremur að framkvæmdir hefjist nú við fyrirhugaða stækkun á núverandi æfingasal.

Þá segir að gera megi ráð fyrir einhverju raski á meðan á framkvæmdum stendur, en unnið verði að því að halda truflun í lágmarki. Um er að ræða verulegar endurbætur þar sem salurinn verður nær tvöfaldaður að stærð. Stækkunin mun skapa aukið rými fyrir fleiri tæki og bætta aðstöðu sem ekki hefur verið unnt að koma fyrir hingað til.

Nýjustu fréttir

Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Strangar kröfur í útboði heilsuræktar vekja ágreining í bæjarstjórn
Davíð Oddsson fallinn frá
ÍBV strákarnir urðu einnig Powerade bikarmeistarar í 3. flokki
Dýpið mælt í Landeyjahöfn
ÍBV Powerade bikarmeistari í 3. flokki kvenna
Mars heilsar með frosti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.