Byggjum upp leikskóla til framtíðar

Tíminn líður hratt og kjördagur nálgast óðum. Tími til kominn að kynna sig en ég heiti Hildur Rún Róbertsdóttir og sit í fjórða sæti Eyjalistans fyrir komandi kosningar 14.maí n.k.

Ég flutti til Vestmannaeyja árið 2017 ásamt manninum mínum, honum Antoni Erni Eggertssyni. Við eigum saman eina litla stelpu, Helgu Dögg 1 árs. 

Ég sá fljótt eftir flutninga að hér líður mér vel og hér er gott að vera. Samfélagið hér í Eyjum er engu líkt, það eru allir boðnir og búnir að aðstoða hver annan. Það er stutt á milli staða, hér er gott að ala upp börn og verja tímanum sínum en við erum svo heppin að vera með framúrskarandi veitingastaði og verslanir í heimabyggð. 

Ég er með B.Ed gráðu í kennarafræði og starfa sem deildarstjóri í leikskóla. Ég er með stórt leikskólahjarta en að mínu mati skipta leikskólar miklu máli fyrir þroska og velferð barnanna okkar. Í leikskólanum er lagður grunnur að öllu námi. Leikskólinn er fyrsta skólastigið og í heimsfaraldri hefur hann staðið sem grunnstoð samfélagsins.

Við erum svo lánsöm hér í Vestmannaeyjum að við erum með tvo frábæra leikskóla og fimm ára deild sem brúar bilið á milli leik- og grunnskóla vel! Starfsfólkið í báðum leikskólum og í Víkinni bera hag barnanna fyrir brjósti, mætir daglega og er eins og samfélagið í heild sinni, boðið og búið til þess að veita börnunum væntumþykju og hlýju, kenna þeim og leiðbeina á þessum fyrstu árum lífs þeirra. 

Þá kemur að pólítíkinni en að mínu mati getum við gert betur fyrir leikskólana okkar og fimm ára deildina. Á kjörtímabilinu sem er að líða hefur verið lögð áhersla á snemmtæka íhlutun í leikskólum sem er jákvætt en við verðum að bæta aðstöðu barnanna til leiks. Leikur er þeirra megin námsleið líkt og kemur fram í Aðalnámskrá leikskóla og aðstæður verða því að vera í lagi. Við verðum að setja okkur skýrar reglur um barngildi, bæta aðbúnað og hljóðvist á deildum og bæta vinnuaðstöðu kennara. Við viljum halda áfram að sjá uppsveiflu í barnafjölda en við verðum að hafa aðstöðu fyrir þau og setja okkur háleit markmið þegar kemur að leikskólamálum hér í bænum. 

Við í Eyjalistanum viljum byggja upp leikskóla til framtíðar. Við gerum þó okkur grein fyrir því að það gerist ekki á augabragði. Það er því nauðsynlegt að sinna úrbótum á núverandi húsnæði leikskólana og Víkinni. Í náinni framtíð, þegar lögð verða drög að nýrri leikskólabyggingu verðum við að hugsa stórt og byggja í takt við þá uppsveiflu sem er í gangi í sveitarfélaginu. Það þýðir ekki að byggja of lítið og frekar gera ráð fyrir niðursveiflu og sitja uppi með sömu vandamál innan nokkurra ára, að það sé ekki pláss fyrir fleiri börn í leikskólunum okkar. 

Leikskólinn hefur staðið sem grunnstoð samfélagsins s.l tvö ár og á þá virðingu skilið að sveitarfélagið leggi áherslu á að gera vel við börnin sem þar nema og starfsfólkið sem er bókstaflega með framtíðina í höndum sér. 

Ég hvet ykkur kæru Vestmannaeyjingar til þess að nýta ykkar kosningarrétt 14.maí n.k.
Hildur Rún Róbertsdóttir

Nýjustu fréttir

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.