Um helgina mun útvarpsstöðin Bylgjan koma við í Eyjum og vera með beina útsendingu frá Höllinni bæði föstudag og laugardag. Kolla og Heimir byrja strax á föstudagsmorgunin og Ívar Guðmunds tekur við af þeim og Siggi Ragg á eftir Ívari. Strákarnir í Reykjavík síðdegis enda svo daginn frá Vestmannaeyjum. Hemmi Gunn og Svansí skemmta svo hlustendum á laugardag. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem má lesa hér að neðan.