D-listinn til sigurs í Eyjum

Ég sótti Vestmannaeyjarnar fögru heim á dögunum og fylltist strax mikilli bjartsýni fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins vegna kosninganna á laugardaginn kemur. Ég fann kraftinn í okkar fólki og sá hversu sterk liðsheild frambjóðendur flokksins í bænum eru. Hugmyndaauðgin mikil og metnaðurinn fyrir hönd bæjarfélagsins sömuleiðis.

Við þingmenn og ráðherrar sjálfstæðismanna áttum góð og innihaldsrík samtöl við frambjóðendur og bakvarðasveit þeirra í Eyjum þar sem mörg mál voru rædd sem við sameiginlega munum beita okkur fyrir af fullum krafti. Má þar til dæmis nefna samgöngur og þá sérstaklega flugsamgöngur, fjölgun verkefna hjá embætti sýslumanns, sjúkraþyrlu sem yrði staðsett í Eyjum og myndi þjóna Suðurlandi allt austur til Hafnar, fjölgun verkefna á sjúkrahúsinu, hjúkrunarheimilið, aukið raforkuöryggi og vatnsflutninga til Eyja.

Allt eru þetta verkefni sem við Sjálfstæðismenn setjum á oddinn og vinnum sameiginlega að með heimamönnum.

Ég hvet kjósendur til að kynna sér stefnumál D-listans og styðja öflugt fólk þar til góðra verka. Það var, er og verður bara einn Sjálfstæðisflokkur í Vestmannaeyjum. Eina leiðin til að styðja hann er að setja X við D. Því er haldið að kjósendum í Eyjum að til sé einhvers konar pólitískt hliðarsjálf sjálfstæðismanna sem standi þeim líka til boða. Sú er ekki raunin. Sjaldan hefur verið ríkari ástæða en einmitt nú til að varast eftirlíkingar þegar í kjörklefann er komið!

Sjálfstæðisflokkurinn í Vestmannaeyjum á sér langa, farsæla og árangursríka sögu sem liðsmenn hans þar og annars staðar á landinu horfa stoltir til. Sjálfstæðismenn eru sem fyrr reiðbúnir til verka með að markmiði að efla og styrkja þetta góða samfélag enn frekar.

Við þökkum höfðinglegar móttökur Eyjamanna og hlökkum til að heimsækja ykkur aftur til áframhaldandi samstarfs og uppbyggilegs samtals.

Saman náum við árangri – fram til sigurs í kosningunum á laugardaginn!

Guðrún Hafsteinsdóttir
1. þingmaður Suðurkjördæmis

 

Nýjustu fréttir

Hlynur bætti Íslandsmetið í hálfmaraþoni
Líflegt spjall á N1 við Friðarhöfn
Tjaldsvæði opnað inni í Herjólfshöll á Þjóðhátíð
Örlygur Helgi ,,fyrst og fremst heiður”
Mannabreytingar í nefndum bæjarins eftir flokkaskipti
Eyjamenn sækja Fram heim
Á rauðu ljósi í Reykjavík
Elmar kom að tólf mörkum fyrir Nordhorn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.