Í gærkvöld fór keppnin Miss Universe Iceland fram, en keppnin var haldin í Hljómahöll í Reykjanesbæ. Keppendur voru 22 talsins, hver annarri glæsilegri. Fulltrúi Vestmannaeyja, Miss Vestmannaeyjar, Díana Íva Gunnarsdóttir komst í 10 stúlkna úrslit. Díana Íva hlaut auk þess “directors award”, en sá titill var veittur þeirri stúlku sem þótti hafa staðið sig framúrskarandi vel við mætingu og ástundun við undirbúning keppninnar, sem og haft góð og jákvæð áhrif á ímynd keppninnar og á aðra þátttakendur.
Miss Akureyri, Kolfinna Mist Austfjörð, lenti í öðru sæti til titilsins Miss supranational Iceland, en Kolfinna er dóttir Ævars Austfjörð sem er Eyjamönnum vel kunnugur.