Í gærmorgun varð Drangavík VE fyrir því óhappi að veiðarfærin fóru í skrúfuna þegar verið var að taka þau um borð eftir að híft hafði verið úr festu, en annar togvírinn hafði slitnað. Drangavík var þá á veiðum út af Vík í Mýrdal, að því er segir í færslu á facebook-síðu Vinnslustöðvarinnar.
Þar segir jafnframt að reynt hafi verið að losa veiðarfærin úr skrúfunni, en þegar það gekk ekki kom Þinganes SF frá Hornafirði til aðstoðar og dró Drangavík til hafnar í Vestmannaeyjum. Dráttarbáturinn Lóðsinn tók þar við og færði skipið að bryggju.
„Skrúfan var skoðuð strax við komuna með neðansjávarmyndavél og ljóst að um töluvert verk er að ræða við að skera veiðarfærin úr henni. Drangavík verður tekin upp í Skipalyftuna á morgun til að ljúka því verki og meta hvort skemmdir hafi orðið. Skipið heldur aftur til veiða um leið og það verður tilbúið.
Aldrei skapaðist hætta og vel gekk að komast til hafnar. Áhöfn Drangavíkur brást við af yfirvegun og fagmennsku. Vinnslustöðin þakkar áhöfn Þinganess og útgerð þess, Skinney-Þinganesi, fyrir veitta aðstoð, sem og áhöfn Lóðsins,” segir að endingu í færslunni.