Drangavík VE dregin til hafnar eftir að veiðarfæri fóru í skrúfu - uppfært
Lóðsinn kemur með Drangavík til hafnar. Ljósmynd/Vinnslustöðin.

Í gærmorgun varð Drangavík VE fyrir því óhappi að veiðarfærin fóru í skrúfuna þegar verið var að taka þau um borð eftir að híft hafði verið úr festu, en annar togvírinn hafði slitnað. Drangavík var þá á veiðum út af Vík í Mýrdal, að því er segir í færslu á facebook-síðu Vinnslustöðvarinnar.

Þar segir jafnframt að reynt hafi verið að losa veiðarfærin úr skrúfunni, en þegar það gekk ekki kom Þinganes SF frá Hornafirði til aðstoðar og dró Drangavík til hafnar í Vestmannaeyjum. Dráttarbáturinn Lóðsinn tók þar við og færði skipið að bryggju.

„Skrúfan var skoðuð strax við komuna með neðansjávarmyndavél og ljóst að um töluvert verk er að ræða við að skera veiðarfærin úr henni. Drangavík verður tekin upp í Skipalyftuna í morgun til að ljúka því verki og meta hvort skemmdir hafi orðið. Skipið heldur aftur til veiða um leið og það verður tilbúið.

Aldrei skapaðist hætta og vel gekk að komast til hafnar. Áhöfn Drangavíkur brást við af yfirvegun og fagmennsku. Vinnslustöðin þakkar áhöfn Þinganess og útgerð þess, Skinney-Þinganesi, fyrir veitta aðstoð, sem og áhöfn Lóðsins,” segir að endingu í færslunni.

Uppfært kl. 11.15

Búið er að taka skipið upp og var ljósmyndari Eyjafrétta viðstaddur slipptökuna. Líkt og sjá má á myndunum fylla veiðafærin út í skrúfuhringinn.

Ljósmyndir/ÓPF

Nýjustu fréttir

Álfsnes, kjarnaborun og höfnin
Vestmannaeyjar, eyjan okkar
Dýpkun gengur hægt – betri horfur síðar í vikunni
Spurt og svarað: Arndís María frá Eyjalistanum
Eitt tilboð í Gjábakkakant – samið niður eftir opnun
Frábæru Íslandsmóti í sveitakeppni í Boccia lokið
Átta dagar og engin svör frá ráðherrum
Dýpkun gekk illa í morgun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.