„Ekki alveg sama kraftveiðin”
Vestmannaey_siglingu
Vestmannaey VE. Eyjar.net/Tryggvi Már

Ísfisktogararnir Bergur VE og Vestmannaey VE lönduðu báðir fullfermi í Eyjum í gær.

Vestmannaey hélt til veiða strax að löndun lokinni en áhöfn Bergs mun sækja Slysavarnaskóla sjómanna og mun skipið ekki láta úr höfn fyrr en á fimmtudagsmorgun. Á vef Síldarvinnslunnar er rætt við skipsjórana, Jón Valgeirsson á Bergi og Birgi Þór Sverrisson á Vestmannaey, síðdegis í gær og eru þeir meðal annars spurðir út í aflabrögðin. Birgir Þór sagði að nú væri á dagskránni að spara þorskinn.

„Uppistaða aflans hjá okkur var ýsa og síðan aðeins þorskur, steinbítur og koli með. Það gengur ekki að moka endalaust upp þorskinum, við verðum að eiga einhvern þorskkvóta í sumar. Það er búin að vera veisla upp á síðkastið en nú er komið undir lok vertíðar og ekki alveg sama kraftveiðin. Í þessum túr vorum við að veiðum austur á Öræfagrunni og Ingólfshöfða. Það þarf semsagt að sækja aflann austar en verið hefur. Túrinn byrjaði rólega en við lentum í góðri veiði á laugardag. Við vorum þrjá sólarhringa í túrnum og það fór einn sólarhringur í stím fram og til baka. Við vorum semsagt einungis tvo sólarhringa að veiðum. Við vorum heppnir með veður. Það brældi aðeins í einn dag en annars var veðrið bara gott,”

segir Birgir Þór. Rétt eins og Birgir Þór sagði Jón Valgeirsson að nú þyrfti að fara austar til veiða.

“Það hefur hægst verulega á veiðum við Eyjar enda fiskurinn búinn að hrygna og hverfur þá af vertíðarslóðinni. Við vorum í tvo sólarhringa að veiðum í þessum túr. Það var byrjað á Víkinni og þar fékkst þorskur, síðan var haldið á Öræfagrunn og þar var ýsu að fá. Þá kom röðin að Ingólfshöfða en þar fékkst bæði þorskur og ýsa. Við restuðum síðan á Öræfagrunni og tókum þar enn meiri ýsu. Nú munum við Bergsmenn sækja Slysavarnaskóla sjómanna og ekki halda til veiða á ný fyrr en á fimmtudag. Við þurfum að sækja skólann á fimm ára fresti og höfum svo sannarlega gott af því,”

segir Jón Valgeirsson.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.