Ekki siglt síðdegis
Herj TMS IMG 8823
Herjólfur. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Því miður falla niður siglingar Herjólfs seinni partinn í dag vegna veðurs og sjólags. Ferð frá Vestmannaeyjum kl. 16:00 og frá Þorlákshöfn kl. 19:45 fellur því niður segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf. Þeir farþegar sem áttu bókað koma til með að fá símtal frá fulltrúum Herjólfs til þess að færa bókun sína.

Jafnframt segir í tilkynningunni að ákvörðun sem þessi sé alltaf tekin með hagsmuni farþega og áhafnar í huga, vonum við að því sé sýndur skilningur.

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar á morgun skv. áætlun. Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00 og 16:00. Brottför frá Þorlákshöfn kl. 10:45 og 19:45.

Við viljum einnig góðfúslega benda farþegum okkar á að spá fyrir miðvikudag er ekki hagstæð þegar kemur að siglingum eins og staðan er núna. Hvetjum við því farþega til þess að ferðast fyrr enn seinna hafi þeir tök á. Ef gera þarf breytingu á áætlun, gefum við það út um leið og það liggur fyrir. Þeir farþegar sem ætla sér að nýta gistirými ferjunnar eru minntir á að þeir þurfa að koma með sinn eiginn búnað.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.