Knattspyrnumaðurinn Elvis Bwonomo hefur skrifað undir samning við ÍBV út keppnistímabilið en hann er að koma til liðsins í annað skiptið. Fyrst kom Elvis til liðsins árið 2022 og lék þá með ÍBV tvö leiktímabil en hann var eftir tímabilið 2023 valinn besti leikmaður ÍBV.
Í tilkynningu frá félaginu segir að hann sé fyrst og fremst öflugur varnarmaður en hann getur leyst flestar stöðurnar í öftustu línu með prýði. Elvis verður 27 ára seinna á árinu en hann var á mála hjá skoska liðinu St. Mirren en hefur verið samningslaus frá því að samningur hans rann út 30. júní.
Elvis kemur frá Úganda eins og margir öflugir leikmenn sem spilað hafa fyrir ÍBV en hann á að baki tvo landsleiki fyrir þjóðina. Hann hefur samtals leikið 48 leiki fyrir ÍBV og er ljóst að nú verða þeir fleiri. Knattspyrnuráð ÍBV fagnar komu Elvis og býður hann velkominn til Vestmannaeyja á nýjan leik, segir í tilkynningunni.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.