Engar loðnuveiðar fiskveiðiárið 2019/2020

Hafrannsóknastofnun leggur til, í samræmi við aflareglu strandríkja, að engar loðnuveiðar verði leyfðar fiskveiðiárið 2019/2020. Ráðgjöfin verður endurmetin byggt á mælingum á stærð veiðistofnsins í byrjun árs 2020.

Samkvæmt bergmálsmælingunni haustið 2019 er hrygningarstofn loðnu metinn 186 000 tonn. Ráðgjöf um aflamark byggist á því að 95% líkur séu á að hrygningarstofninn í mars verði yfir 150 000 tonnum. Samkvæmt framreikningum munu markmið aflareglu ekki nást, jafnvel þótt engar veiðar verði stundaðar á vertíðinni 2019/2020. Vísitala ungfisks var sú hæsta síðan árið 2010.

Hér er um að ræða haustráðgjöf sem er endurmetin ráðgjöf fyrir núverandi fiskveiðiár og kemur í stað upphafsráðgjafar. Ráðgjöf um upphafsafla þessa fiskveiðiárs byggði á bergmálsmælingu ókynþroska loðnu (1 og 2 ára) haustið 2018, samkvæmt aflareglu sem samþykkt var á rýnifundi ICES árið 2015 (ICES, 2015). Aflareglan gerir ráð fyrir að ráðgjöfin verði endurskoðuð að loknum mælingum á stærð veiðistofnsins að hausti og gefin út lokaráðgjöf að loknum leiðöngrum í janúar og febrúar.

Niðurstöður leiðangursins byggja á umfangsmikilli yfirferð. Almennt fannst lítið af kynþroska loðnu á leitarsvæðinu og engin loðna fannst austanvert í Íslandshafi eða við Jan Mayen. Talið er að tekist hafi að dekka þekkt útbreiðslusvæði stofnsins.

 

sjá nánanar hér

Nýjustu fréttir

Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.