Kap VE kom til hafnar í Vestmannaeyjum í morgun með um 50 tonna afla, að stærstum hluta stórþorski úr Breiðafirði. Skipið hefur verið við veiðar í Breiðafirði síðustu tvær vikur og landað afla sínum í Grundarfirði á meðan. Kristgeir Arnar Ólafsson, skipstjóri á Kap, segir tíðarfarið hafa verið erfitt en aflann engu að síður góðan.
„Við höfum sem betur fer getað haldið út undanfarið með því að sækja vestur og landa í Grundarfirði. Það hefði orðið mun minna um róðra við suðurströndina miðað við hvernig veðrið hefur verið,“ segir Kristgeir í samtali við facebook-síðu Vinnslustöðvarinnar.
Hann bætir við að veðrið hafi verið mun skárra fyrir vestan: „Það hafa komið brælur fyrir vestan en hér hefur verið nánast samfellt óveður. Nú er vonandi breyting í vændum og við ætlum að ná góðum spretti hér heimavið fram að hrygningarstoppi.“
Hann segir að flest veiðisvæði loki frá 12. apríl til 21. apríl vegna hrygningar, en að því loknu taki veiðar aftur við og standi fram í maí. „Við stoppum svo yfirleitt fram í september,“ segir hann.
Í gærkvöldi kom upp bilun á leiðinni til hafnar þegar aðalvél skipsins slökkti á sér þar sem Kap var statt undan Grindavík. Aldrei skapaðist hætta og var skipið Sighvatur GK frá Grindavík nærstatt og tilbúið til að veita aðstoð ef þörf hefði verið á. Vélstjórum Kap tókst þó fljótt að finna orsök bilunarinnar og laga hana, og hélt skipið þá áfram siglingu sinni.
Löndun úr Kap hófst strax í morgun og fer aflinn í vinnslu hjá Vinnslustöðinni. Um er að ræða stóran þorsk sem verður flattur og saltaður fyrir Portúgalsmarkað. Einnig er talsvert af lifur sem fer í niðursuðu hjá Idunni Seafood. Marhólmar hafa tekið við miklu magni þorskhrogna til vinnslu, en hafa nú gert hlé á því yfir páskana. Ljóst er að mikil verðmæti verða til á vetrarvertíð í Vestmannaeyjum.